Fasteignaleitin
Skráð 16. júlí 2026

Ljósheimar 7

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
262.5 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
180.000.000 kr.
Fermetraverð
685.714 kr./m2
Fasteignamat
173.300.000 kr.
Brunabótamat
124.350.000 kr.
Mynd af Snorri Björn Sturluson
Snorri Björn Sturluson
Hdl., Löggiltur fasteignasali. Eigandi.
http://valholl.isEignalisti
Húsið er eftir

Íslenskur módernismi og funkis.

Kemur fram í lýsingu eignarinnar.
Byggt 1960
Garður
Svalir
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2021843
Landnúmer
105301
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Gamlar - Ekki vitað
Raflagnir
Gamlar - Ekki vitað
Frárennslislagnir
Fóðraðar undir hús og upp undir plötu árið 2019
Gluggar / Gler
Skipt um gler að hluta. Ekki vitað hvenær. Gluggar upprunalegir.
Þak
Upprunalegt - Ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Valhöll kynnir endaraðhús á rólegum og grónum stað í Ljósheimum í Reykjavík teiknað af Sigvalda Thordarsyni arkitekt. . Húsið er umlukið stórri fallegri og gróinni lóð. Þaksvalir út frá hjónaherbergi. Bílskúr í sérstæðri bílskúrslengju.

Húsið er skráð 262,5 fm hjá HMS og skiptist í 132,3 fm neðri hæð, 105,4 fm efri hæð og 24,8 fm bílskúr.

Gott fjölskylduhús staðsett í barnvænu hverfi í göngufæri við alla helstu verslun og þjónustu, útivist og líkamsrækt.

Athugið að það vantar viðbyggingu á efri hæð á teikninguna á efri hæð sem er með myndunum af eigninni.


Nánari upplýsingar veitir Snorri Björn Sturluson fasteignasali / lögfræðingur í síma 699-4407 eða snorribs@valholl.is

Nánari lýsing:

Neðri hæð:
Forstofa með fataskáp og flísum á gólfi. 
Gestasnyrting er innaf forstofu með flísum á gólfi.
Geymsla er innaf forstofu.
Borðstofuhol  með innbyggðum skennk, parketi á gólfi og útgengi í garðinn.
Stofa með aukinni lofthæð, stórum gluggum, arinn, parketi á gólfi og útgengi í garðinn.
Sjónvarpshol með parketi á gólfi. 
Eldhús með L-laga innrétting með neðri skápum og efri að hluta, eyju og kork á gólfi. 
Þvottahús er innaf eldhúsi með stæði fyrir þvottavél og þurrkara og útgengi á framlóð hússins.
Tvö búr / geymslur innaf þvottahúsi.

Efri hæð:
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og útgengi á þaksvalir þar sem horft er yfir garðinn. Þessu herbergi var bætt við húsið.
Herbergi 2 er samliggjandi hjónaherberginu með parketi á gólfi. 
Herbergi 3 með parketi á gólfi og útgengi á þaksalir.
Herbergi 4 er frekar lítið parketi á gólfi.
Herbergi 5 er með parketi á gólfi.
Baðherbergi með innréttingu, baðkari, sturtuklefa og flísum á gólfi. 
Gestasnyrting með flísum á gólfi. Ekki nýtt sem gestasnyrting í dag, vantar salernið.

Bílskúrinn er 24,8 fm á stærð með hita og rafmagni í sérstæðri bílskúrslengju til hliðar við húsið.

Nánari upplýsingar veitir Snorri Björn Sturluson fasteignasali / lögfræðingur í síma 699-4407 eða snorribs@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. 

Forsendur söluyfirlits:   
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.




 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1973
24.8 m2
Fasteignanúmer
2021843
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
10.650.000 kr.

Myndir (49)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugarnesvegur 67
Opið hús:20. ágúst kl 17:00-17:20
Laugarnesvegur 67
105 Reykjavík
95.4 m2
Fjölbýlishús
312
890 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Álfheimar 74
Skoða eignina Álfheimar 74
Álfheimar 74
104 Reykjavík
261.1 m2
Atvinnuhúsn.
614
559 þ.kr./m2
146.000.000 kr.
Skoða eignina Geitland 8
Bílskúr
Efsta hæð
Opið hús:20. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Geitland 8
Geitland 8
108 Reykjavík
144.2 m2
Fjölbýlishús
513
797 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Stigahlíð 10
Efsta hæð
Opið hús:20. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Stigahlíð 10
Stigahlíð 10
105 Reykjavík
83 m2
Fjölbýlishús
312
842 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin