SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*HUGGULEG ÍBÚÐ Í TORREVIEJA* *VEL STAÐSETT* *GÖNGUFÆRI Á STRÖND* *GOTT VERÐ*Góð 3ja herb. íbúð á frábærum stað í Torrevieja. Öll þjónusta s.s. sjúkrahús, ráðstefnu- og tónleikahöll, verslanir og veitingastaðir eru í næsta nágrenni. Einstakt tækifæri til að eignast góða íbúð rétt við ströndina.
Allar upplýsingar gefur:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, GSM 0034 615 112 869, berta@spanareignir.is ,Nánari lýsing:Gengið er inn í bjarta stofu og út frá stofu er hálfopin borðstofa. Úr stofu er einnig gengið inn í gott eldhús. Svefnherbergin eru tvö og er annað þeirra með innbyggðum skápum og útgengi á litlar svalir. Baðherbergið er snyrtilegt með baðkari / sturtu, opnanlegum glugga og nýlegum vaski og innréttingu. Íbúðin sem er 70 fm snýr í suðaustur og er því björt og hlýleg allt árið um kring. Íbúðinni fylgja öll húsgögn og heimilistæki og staðsetningin er frábær, einungis er um 350 m gangur niður á strönd og 45 km akstur á flugvöllinn í Alicante. Fallegur sameiginlegur garður með sundlaug og sólbaðsaðstöðu.
Frábært tækifæri og hentar sem orlofseign, til heilsársbúsetu eða fjárfesting.
Verð 139.500 evrur (20.200.000 ISK - gengi 1Evra=145ISK) + 9% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin.Kostnaður við kaupin:
9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 12%.
Meira um Torrevieja:Frábær staðsetning við náttúrulegu saltvötnin í Torrevieja. Heilsusamlegt loftslag og góð tenging við helstu samgönguleiðir, N332 strandveginn og A-7 hraðbrautina. Ca. 40 mín akstur í suður frá Alicante flugvellinum.
Í næsta nágrenni er fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða, Habaneras verslunarmiðstöðin, stærsti götumarkaðurinn í Torrevieja (á föstudögum), ráðstefnu- og tónleikahöll og alþjóðlega einkasjúkrahúsið Quiron. Gott aðgengi að íþróttasvæðum, skólum og stutt á ströndina. Fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, iðandi mannlíf Torrevieja með skemmtilegu "promenade" meðfram ströndinni og við bátahöfnina.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
www.spanareignir.isEiginleikar: svalir, air con, sameiginleg sundlaug, strönd, miðbær,
Svæði: Costa Blanca, Torrevieja,