Fasteignaleitin
Skráð 17. maí 2023
Deila eign
Deila

Hæðargerði 33

EinbýlishúsAusturland/Reyðarfjörður-730
183 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
381.967 kr./m2
Fasteignamat
41.650.000 kr.
Brunabótamat
74.350.000 kr.
Byggt 1980
Þvottahús
Garður
Útsýni
Margir Inng.
Fasteignanúmer
F2177250
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðar í húsi
1
Hæðar í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Svalir
Sólpallur
Inngangur
Margir inngangar
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Loftklæðning á baðherbergi er skemmd eftir þakleka en þó frekar vegna þess að hún er ekki af réttri gerð og hefur því ekki þolað að vera í votrými. Ný klæðning í loftið fylgir með húsinu. Laga þarf skotrennu á þaki yfir baðherberginu. Þar ber á leka við sérstök skilyrði og mikið vatnsveður. Þessi skilyrði myndast ekki oft og vatnið safnast ekki fyrir, Talið er að hægt sé að koma í veg fyrir svona leka með því að opna skotrennuna og setja nýjan þakpappa eða dúk í hana. Ekki hefur verið klárað að klæða neðan á þakskegg hússins.

LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali thordis@lindinfasteignir.is kynna:
Hæðargerði 33 á Reyðarfirði. 

Hér er glæsileg og mikið endurnýjuð eign með sambyggðum bílskúr sem er innangengt í, stóru malbikuðu bílaplani, mjög stórum og vönduðum sólpalli, geymsluskúr á steyptri plötu, gróðurskála/geymslu, snyrtilegri grasflöt, veðursæld og frábæru útsýni. Heitur pottur getur fylgt ef um semst.


4 svefnherbergi eru í húsinu samkvæmt teikningu en í dag er rúmgott aukaherbergi (5. svefnherbergið) í bílskúrnum en auðvelt að að fjarlægja það svo bílskúrinn nýtist að fullu sem slíkur.
Húsið hefur nýlega verið klætt að utan og einangrað upp á nýtt og skipt um um allar glugga og hurðir. Þakjárn var yfirfarið og sprautað og nöglum skipt úr fyrir skrúfur.
Garðurinn var gerður að mjög góðu útisvæði með stórum sólpalli og góðum geymslum. Bílastæði hefur nýlega verið malbikað.
Eldhús var endurðnýjað og opnað inn í stofuna. Stór og góð innrétting er í eldhúsinu. Öll gólfefni eru nýleg nema á forstofu og gestasnyrtingu en endurnýjun á þeim rýmum er hafin.
Baðherbergi var endurnýjað fyrir nokkrum árum. Skipta þarf um klæðningu í lofti og er efni í það til og fylgir með.

Komið er inn í forstofu og þar á vinstri hönd er þvottahúsið og úr því er innangengt í bílskúrinn þar sem í dag er rúmgott auka svefnherbergi.  
Til hægri við forstofuna er gestasnyrting.
Stofa/borðstofa er í SV horni hússins og eru dyr þaðan út á skjólsælan sólpall. 
Eldhús og borðstofa eru í opnu rými með stofunni. Hátt er til lofts í þessum rýmum.
Rúmgóður gangur er frá  baðherberginu að svefnherbergjunum sem eru 4, 2 herbergjanna eru mjög rúmgóð, 1 er meðalstórt og eitt heldur minna.
Húsið er á vinsælum stað á Reyðarfirði. Stutt í skóla og íþróttamannvirki og einnig er stutt út í náttúruna.
Íbúðarhúsið er úr timbri en bílskúrinn steyptur. 
Gott aðgengi er að húsinu og lóðin falleg og góð til útivistar.
Garðurinn sunnan við húsið er girtur með traustri en lítið áberandi girðingu.
.

Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati en 0.4% fyrir fólk sem er að kaupa sína fyrstu fasteign. Lögaðilar greiða 1.6% af fasteignamati.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi, umboði o.fl. 2.000 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 48.980 kr. m.vsk.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Mynd af Þórdís Pála Reynisdóttir
Þórdís Pála Reynisdóttir

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Heiðarvegur 17
Skoða eignina Heiðarvegur 17
Heiðarvegur 17
730 Reyðarfjörður
242 m2
Einbýlishús
826
279 þ.kr./m2
67.500.000 kr.
Skoða eignina Stekkjarbrekka 6
Bílskúr
Skoða eignina Stekkjarbrekka 6
Stekkjarbrekka 6
730 Reyðarfjörður
221 m2
Einbýlishús
825
316 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Einbúablá 21
Bílskúr
Skoða eignina Einbúablá 21
Einbúablá 21
700 Egilsstaðir
153.5 m2
Einbýlishús
514
433 þ.kr./m2
66.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2023 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache