Mánastígur 4,Um er að ræða fallega sérhæð með bílskúr á afar eftirsóttum stað. Eignin er skráð 140,8 fm samkvæmt fasteignamati, þar af er íbúðin 115,2 fm og bílskúrinn 25,6 fm.
Í dag er eignin með tveimur svefnherbergjum, en auðvelt er að breyta skipulaginu þannig að hún verði 4ra herbergja íbúð eftir þörfum nýrra eigenda.Samkvæmt upplýsingum frá eigendum hafa eftirfarandi framkvæmdir verið framkvæmdar á eigninni á síðustu árum:Skipt var um þak árið 2012 og það málað árið 2020.
Drenað var meðfram húsinu árið 2017.
Hluti glugga var endurnýjaður árið 2016.
Samþykkt hefur verið í húsfélagi að ljúka gluggaskiptum árið 2027 og verður seljandi búinn að greiða sinn hlut af þeirri framkvæmd fyrir afhendingu eignarinnar.
Ný útidyrahurð var sett upp árið 2024.
Nánari lýsing:Sérinngangur er inn í eignina. Komið er inn í rúmgóða forstofu og þaðan inn á hol sem tengir saman öll rými íbúðarinnar.
Hjónaherbergið er rúmgott með góðum fataskápum og útgengi út á sólríkar svalir.
Annað svefnherbergi er staðsett við hinn enda íbúðarinnar og skiptist það í raun í tvö rými, nánar má sjá það á ljósmyndum eignarinnar.
Bjart og fallegt alrými myndar hjarta heimilisins, þar sem stofa, borðstofa og eldhús renna vel saman. Eldhúsið býður upp á gott skápa- og vinnupláss auk notalegs borðkróks.
Inn af eldhúsinu er þvottahús með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, skolvaski og glugga sem tryggja góða birtu og loftræstingu.
Baðherbergið er flísalagt og búið bæði sturtu og baðkari.
Bílskúr fylgir eigninni og er geymsla inn af honum. Fyrir framan bílskúrinn er rúmgott bílastæði.
Nánari upplýsingar veitir:
Stefán Rafn Sigurmannsson s.655-7000 eða stefan@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is