Fasteignaleitin
Skráð 29. sept. 2025

Dvergshöfði 4

Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
1,633 m2
Verð
Tilboð
Mynd af Halldór Már Sverrisson
Halldór Már Sverrisson
Fasteignanúmer
2282437_2
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Númer hæðar
0
Lóðarréttindi
Leigulóð
Atvinnueign kynnir til leigu: Um 1633 fm heil hæð á 4., 5. eða 6. hæð í nýrri og stórglæsilegri skrifstofubyggingu á sjö hæðum við Dvergshöfða 4 sem er nú í byggingu. Rýmið er vel staðsett og býður upp á fjölbreytta möguleika fyrir fyrirtæki sem vilja nýta sér sterka staðsetningu til framtíðar í hverfi sem er í hraðri uppbyggingu. Gert er ráð fyrir afhendingu fyrri hluta árs 2027. VSK bætist við leiguverð. 

Helstu kostir: Frábært staðsetning í nýjum kjarna, Borgarhöfða. Fjöldi bílastæða ofan- og neðanjarðar. Mikil þjónusta í nánasta umhverfi. Nútíma vinnuumhverfi sem býður uppá mikil gæði, góða dagsbirtu, hljóðvist og loftgæði.
Stærð: Um 10.500 m² umhverfisvottað hús á 7. hæðum, með möguleika á þáttöku í hönnun innra skipulags eftir þörfum leigutaka.
Skipulag: Ekki er komin endanleg hönnun á innra skipulag og því möguleiki á þáttöku leigutaka í hönnun.
Aðstaða: Áhersla lögð á sjálfbærni og snjallausnir. 
Aðgengi: Fjöldi bílastæði ofanjarðar og neðanjarðar. Fyrsti áfangi Borgarlínunnar í innan við 5 mínútna göngufjarlægðar.
Umhverfi: Mikil þjónusta á svæðinu sem mun aukast enn frekar m.a mathöll og heilsugæsla. Stutt í almenningsamgöngur og stofnbrautir.
Þetta rými er tilvalið fyrir fyrirtæki í mismunandi atvinnugreinum sem þurfa gott vinnuumhverfi. Staðsetningin tryggir gott aðgengi og mikin sýnileika á frábærum stað. Húsið verður um 13.600 m að stærð með kjallara og bílakjallara fyrir 131 bifreið. Dvergshöfði liggur sérstaklega vel að samgönguæðum og er miðsvæðis í Reykjavík.
Samkvæmt vinningstillögu að rammaskipulagi rís byggð fyrir 10-15 þúsund manns á Ártúnshöfða á næstu árum. Dvergshöfði liggur alveg við fyrirhugað byggingasvæði. Lóð á horni Breiðhöfða og Bíldshöfða. Grunnur og bílakjallari hefur verið steypt. Tekur um ár að fullbyggja húsið. Hæðiirnar verða innréttaðar að þörfum leigutaka.

Allar nánari upplýsingar veita:
Ólafur Ingi Guðmundsson, löggiltur fasteignasali og leigumiðlari í síma 847-7700 - olafur@atvinnueign.is
Sigursteinn Stefánsson, viðskiptafræðingur og aðstoðarmaður fasteignasala í síma 860 5415 eða sigursteinn@atvinnueign.is

Á vefsíðu okkar getur þú fundið fleiri eignir sem og kynnt þér þjónustu Atvinnueigna ehf, www.atvinnueign.is

                - Atvinnueignir eru okkar fag - 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (11)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eirhöfði 7d (117)
Eirhöfði íb 117.jpg
Eirhöfði 7d (117)
110 Reykjavík
92.2 m2
Fjölbýlishús
312
975 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7d (219)
Eirhöfði íb 219.jpg
Eirhöfði 7d (219)
110 Reykjavík
110.3 m2
Fjölbýlishús
312
996 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7a (101)
Eirhðfi 7 íb 101.jpg
Eirhöfði 7a (101)
110 Reykjavík
136.8 m2
Fjölbýlishús
423
979 þ.kr./m2
133.900.000 kr.
Skoða eignina Síðumúli 31
Síðumúli 31 sameiginleg auglýsing.jpg
Skoða eignina Síðumúli 31
Síðumúli 31
108 Reykjavík
574.9 m2
Atvinnuhúsn.
33
426 þ.kr./m2
245.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin