Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali hjá TORG fasteignasölu s: 844-6516 kynnir: Falleg og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð með
sérinngangi og sérafnotareit í nýlegu húsi við Skyggnisholt 14 í Vogum. Íbúðin er endaíbúð með glugga till þriggja átta. Eignin er skráð 106,6 fm. og skiptist í anddyri/hol, 3 svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, eldhús með borðkrók (barstólaplássi), rúmgóða stofu og borðstofu. Frá stofum er útgengt á sérafnotareit með háum skjólveggjum. Sérgeymsla er innan íbúðar.
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Ragnar fasteignasali í s: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is.Nánari lýsing:Forstofa: Gengið er inn um sérinngang að flísalagðri forstofu með háum þreföldum fataskáp.
Hol/gangur: Frá forstofu er gengið inn í hol/gang sem tengir saman flest rými eignarinnar. Harðparket á gólfum
Eldhús: Bjart eldhús með fallegri innréttingu með framlengdri eyju fyrir barstóla. Gott skápa- og vinnupláss. Bakaraofn, innbyggð uppþvottavél og stæði fyrir ísskáp. Harðparket á gólfi.
Stofa/Borðstofa: Stórar og miklar stofur í opnu og björtu rými með harðparketi á gólfi. Útgengt er á sérafnotareit með háum skjólveggjum.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott hjónaherbergi með góðum háum fjórföldum fataskápum og harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi: Að undanskildu hjónaherbergi eru tvö önnur svefnherbergi með harðparketi á gólfi og háum fataskápum.
Baðherbergi: Falleg innrétting með handlaug og neðri skápum og skúffum. Upphengt salerni og flísalögð walk-in sturta með hertu gleri. Flísar á gólfi og hluta veggja. Innan baðherbergis er einnig þvottavélaInnrétting með efriskáp og tengjum fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Innan íbúðar er sérgeymsla.
Lóð / Sameign: Húsið er tveggja hæða, steinsteypt með 8 íbúðum og 32 bílastæðum sem eru í sameign allra íbúa Skyggnisholts 12 og 14. Búið er að koma upp sameiginlegum hleðslustaurum fyrir rafbíla sameiginlegu bílastæði.
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Ragnar fasteignasali í s: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is