Fasteignaleitin
Skráð 23. feb. 2026

Valshlíð 3 - 210

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
116.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
116.900.000 kr.
Fermetraverð
1.001.714 kr./m2
Fasteignamat
94.450.000 kr.
Mynd af Páll Pálsson
Páll Pálsson
Löggiltur fasteignasali
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2532605
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Númer íbúðar
10
Lóðarréttindi
Leigulóð
Inngangur
Sameiginlegur
Virkilega björt og stílhrein 4ja herbergja íbúð á 2. hæð í glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum.

Þrír kaupmöguleikar í boði. 
* Hlutdeildarkaup 
* Þarft einungis 10% útborgun
* Búseturéttur 


Nánari upplýsingar varðandi kaupmöguleika, eignina og skoðun fást hjá:
Pálsson fasteignasölu, palsson@palssonfasteignasala.is S. 764-7474
www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

* Quartz-steinn á borðum og milli skápa í eldhúsi
* Gluggar til suðurs og til norðurs
* 3 svefnherbergi
* Sér þvottahús innan íbúðar
* Suðursvalir

Birt stærð er 116,7 fm þar af 10,8 fm geymsla í kjallara.

Íbúðin er gegnumlýst. Íbúðin skiptist í anddyri, gang, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir, 3 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Íbúðin afhendist með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, gæðaraftækjum frá Siemens, hágæða ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mjöll 2.
 
Nánari lýsing: 
Mjög rúmgott anddyri með góðum fataskáp.
Gengið er úr anddyri inn gang og þaðan inn í rúmgott alrýmieldhús með eyju, stofu/borðstofu með útgengi á rúmgóðar suðursvalir.
Ljós eldhúsinnrétting, ljósyrjóttur quartz-steinn á borðum og milli skápa og blöndunartæki úr burstuðu stáli.
Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum.
Tvö rúmgóð og björt svefnherbergi með fataskápum. 
Baðherbergi er með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, ljós innrétting og speglaskápur með lýsingu. Blöndunartæki úr burstuðu stáli.
Þvottaherbergi með ljósri innréttingu og leirljósum steinflísum á gólfi. Vaskur í þvottaherbergi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0047.
Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru fullloftræstar og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir. 
 
Myndir í auglýsingu geta verið úr annari íbúð með sama innréttingaþema.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
5. Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (10)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Þórufell 8
Skoða eignina Þórufell 8
Þórufell 8
111 Reykjavík
56.8 m2
Fjölbýlishús
211
861 þ.kr./m2
48.900.000 kr.
Skoða eignina Strandgata 26 íb. 304
Strandgata 26 íb. 304
220 Hafnarfjörður
74.3 m2
Fjölbýlishús
211
1170 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Suðurhella 16 íb. 406
Suðurhella 16 íb. 406
221 Hafnarfjörður
122.6 m2
Fjölbýlishús
413
648 þ.kr./m2
79.500.000 kr.
Skoða eignina Suðurhella 16 íb. 204
Suðurhella 16 íb. 204
221 Hafnarfjörður
78.4 m2
Fjölbýlishús
211
764 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin