Fasteignaleitin
Skráð 11. maí 2026

Lækjarvellir 13-15

Nýbygging • RaðhúsNorðurland/Grenivík-610
98.5 m2
3 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
55.600.000 kr.
Fermetraverð
564.467 kr./m2
Sérinng.
Fasteignanúmer
25275602
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Nordik fasteignasala kynnir fasteignina Lækjarvellir 13-15, 610 Grenivík:
Raðhúsaríbúðir á einni hæð á góðum stað á Grenivík. 

- Útborgun aðeins um 2.750.000,-, fyrir glænýja eign á besta stað á Grenivík ef sótt er um hlutdeildarlán frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.-


Um er að ræða 3-4 herbergja raðhúsaríbúðir á einni hæð. Endaíbúðir eru 98,5 fm. en hinar eru 96 fm. 

Val um að fá eignina afhenda (verð endaíbúð):
Tilbúið að utan; fullkláruð að utan, búið að einangra upp í loft og plasta, hiti kominn á. Verð kr. 44.900.000,-.
Fullklárað; fullkláruð að utan og innan, með heimilistækjum. Val eru um nokkra liti á innréttingum. Verð kr. 55.600.000,-.

Samkvæmt hönnun skiptist eignin í forstofu, tvö svefnherbergi, svefnherbergi/geymslu með glugga, þvottahús, baðherbergi með sturtu eða baði, stofa og eldhús í rúmgóðu alrými þar sem gengið er út á sólpall.

Nánari lýsing, afhending fullfrágengin að innan og utan:
Forstofa er flísa- eða parketlögð. Þaðan er gengið inn í þvottahús, herbergi/geymslu og inn í alrými.
Þvottahús er flísalagt, innrétting þar sem þvottavél og þurrkara er lyft upp í þægilega vinnuhæð.
Svefnherbergi/geymsla, með góðum glugga og fataskáp, parket á gólfi.
Svefnherbergi eru tvö, bæði með góðum fataskáp, parket á gólfi. Útgengt út á sólpall úr hjónaherbergi.
Baðherbergi, flísar á veggjum og gólfi, val um sturtu eða bað.
Eldhús og stofa, í einu alrými, aðskilin með eldhúseyju. Parket á gólfi. Val um hvort loft séu niðurtekin að hluta. Stórir gluggar. Gengið úr rýminu út á sólpall, tengi fyrir heitan pott.
Bílastæði fyrir 2 bíla að framan. Ruslaskýli fyrir þrjár 120L. ruslatunnur.

Aðrar upplýsingar:
- Seljandi þarf að greiða 0,3% skipulagsgjald af brunarbótamati, þegar það er lagt á.
- Eignin er í einkasölu hjá Nordik Fasteignasölu, Akureyri.

Að öðru leyti vísast til skilalýsingar fasteignar og hönnunargagna, sem fáanleg eru hjá fasteignasölu. Nánari upplýsingar veitir Andrés Már Magnússon, lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 8522098, tölvupóstur andres@nordikfasteignasala.is.

​​​​​​Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

*Verið er að reisa fasteignina. Myndir í auglýsingu eru unnar út frá teikningum og grafískri hönnun. Þær eru því aðeins til viðmiðunar til að gefa hugmynd um endanlegt útlit eignar. 
 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Nordik fasteignasala
primalogmenn.is

Myndir (12)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hvammabraut 12
Opið hús:02. júlí kl 16:30-17:00
Skoða eignina Hvammabraut 12
Hvammabraut 12
220 Hafnarfjörður
77.8 m2
Fjölbýlishús
312
770 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Hagamelur 12
Skoða eignina Hagamelur 12
Hagamelur 12
107 Reykjavík
68.1 m2
Fjölbýlishús
211
953 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Dalsmúli 1
Skoða eignina Dalsmúli 1
Dalsmúli 1
108 Reykjavík
53.5 m2
Fjölbýlishús
211
1213 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Beykiskógar 19
Skoða eignina Beykiskógar 19
Beykiskógar 19
300 Akranes
73.5 m2
Fjölbýlishús
312
815 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin