Fasteignaleitin
Skráð 4. apríl 2025
Deila eign
Deila

Sólvellir 11

ParhúsNorðurland/Akureyri-600
128 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
64.900.000 kr.
Fermetraverð
507.031 kr./m2
Fasteignamat
57.350.000 kr.
Brunabótamat
54.950.000 kr.
Sigurpáll Árni Aðalsteinsson
Löggiltur fatsteigna og skipasali
Byggt 1951
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2150671
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Talið í lagi - ekki skoðað
Raflagnir
Talið í lagi - ekki skoðað
Frárennslislagnir
Talið í lagi - ekki skoðað
Gluggar / Gler
Gluggar endurnýjaðir 2021
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Útsýnissvalir í norður
Upphitun
Hitaveita - ofnar
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Kasa fasteignir 461-2010.

Sólvellir 11 - Falleg 5-6 herbergja, 128 fm parhúsíbúð á tveimur hæðum á góðum stað á Eyrinni. 
Grunnskóli er hinum megin við götuna og stutt í verslanir og aðra þjónustu. Rólegt og barnvænt hverfi í göngufæri frá miðbænum. 


Eignin skiptist í: 
Neðri hæð: Forstofa, gangur, þrjú herbergi, gestasalerni og þvottahús.
Efri hæð: Eldhús, hol, borðstofa, stofa og baðherbergi. 


Neðri hæð: 
Forstofa: Flísar á gólfi og opið fatahengi.
Gangur: Flísar á gólfi.
Herbergi: Þrjú herbergi eru á hæðinni, öll með parketi á gólfum og fataskáp.
Gestasalerni: Herbergið er nýtt sem vinnuherbergi og geymsla í dag. Þar eru flísar á gólfi og búið að tengja salerni og handlaug og því möguleiki á að breyta herberginu í fullbúið baðherbergi. 
Þvottahús: Gólf er lakkað. Lítil innrétting og opnar hillur ásamt plássi fyrir þvottavél og þurrkara. Útgengt er úr þvottahúsi út í garð til vesturs.

Stigi á milli hæða er parketlagður með fallegum glugga sem veitir góðri birtu inn í rýmið. 

Efri hæð: 
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, góð innrétting, upphengt salerni, sturta og handklæðaofn. Opnanlegur gluggi er á baðherbergi. 
Eldhús: Parket á gólfi, innrétting með góðu skápa- og skúffuplássi og bökunarofni í vinnuhæð. Lítill borðkrókur er við enda innréttingarinnar. 
Hol: Parket á gólfi. Úr holinu er gengið út á litlar svalir í norður. 
Stofa/borðstofa: Opið og bjart rými með parketi á gólfi og góðu útsýni í austur og vestur. Mögulegt er að breyta annarri stofunni í herbergi, ef vilji er fyrir því.  

- Frábær staðsetning á Eyrinni rétt við leik- og grunnskóla.
- Geymsluskúr á lóð. 
- Húsið var málað að utan árið 2021.
- Skipt um alla glugga og gluggalista árið 2021.
- Ljósleiðari er í húsinu.


Nánari upplýsingar veita:
Sigurpáll á sigurpall@kasafasteignir.is eða í síma 696-1006.
Helgi Steinar á helgi@kasafasteignir.is eða í síma 666-0999.
Sibba á sibba@kasafasteignir.is eða í síma 864-0054.
Ester - nemi til löggildingar fasteignasala á ester@kasafasteignir.is eða í síma 661-3929. 

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
22/10/201420.850.000 kr.27.000.000 kr.128 m2210.937 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Munkaþverárstræti 33 - eh.
Munkaþverárstræti 33 - eh.
600 Akureyri
112.7 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
313
550 þ.kr./m2
62.000.000 kr.
Skoða eignina Sómatún 3 íbúð 201
Sómatún 3 íbúð 201
600 Akureyri
97 m2
Fjölbýlishús
312
701 þ.kr./m2
68.000.000 kr.
Skoða eignina Þingvallastræti 44
Þingvallastræti 44
600 Akureyri
130 m2
Einbýlishús
413
512 þ.kr./m2
66.500.000 kr.
Skoða eignina Þingvallastræti 44
Þingvallastræti 44
600 Akureyri
130 m2
Einbýlishús
42
512 þ.kr./m2
66.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin