CROISETTE kynnir til leigu - Katrínartún 4Til leigu rúmlega 600 -1320fm skrifstofa í Katrínartúni 4, Höfðatorgi. Um er að ræða skrifstofu á 6.hæð í 9 hæða skrifstofuturni á Höfðatorgi.
Í rýminu eru um 10 lokaðar skrifstofur, rúmgóð fundarherbergi, lokuð næðisrými, opið rými með eldhúsinnréttingu og sameiginlegt salerni með einni annarri skrifstofu á hæðinni.
Skrifstofurnar aðskildar með gifsveggjum en glerveggir að opnu svæðunum. Vínilparket á gólfum, innfeld lýsing og kerfisloft yfir allri skrifstofunni. Ljósastýring í öllum rýmum. Lyfta í húsinu.
Plássinu fylgja 11 bílastæði (Samtímastæði) í bílakjallara. Í bílakjallara er svo einnig hjólageymsla, líkamsræktarstöð, bílaþvottur og aðgengi að golfhermi.
Frábært mötuneyti er í húsinu sem allir leigutakar í húsinu geta keypt aðgang að.
Möguleiki að skipta plássinu í tvennt og hægt að leigja 600m2 eða alla hæðina eftir hvað hentar.
VSK leggst við leigufjárhæð. Laust strax.
Magnað útsýni.
Hægt er að skoða skrifstofunna hér í 3D.Nánari upplýsingar veitir:
Styrmir Bjartur Karlsson, lfs. og framkvæmdastjóri í s. 899 9090 og styrmir@croisette.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í húsaleigulögum nr. 36/1994 er kveðið á um heimild aðila kalla til skoðunaraðila til úttektar á húsnæðinu fyrir afhendingu. Croisette - Knight Frank bendir væntanlegum leigjendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Í tilfelli atvinnuhúsnæðis er ríkari heimild aðila að semja sig frá lögum og gildir þá ákvæði leigusamnings ef til ágreinnings kemur.