Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali hjá TORG fasteignasölu kynnir: Björt og rúmgóð 4ra herbergja íbúð með stórum pall í Sjálandshverfi Garðabæjar. Eignin er alls 114,1 fm. og skiptist í þrjú svefnherbergi, stóra stofu/borðstofu, stofugang/hol, eldhús, baðherbergi, þvottahús og geymslu í kjallara. Sérmerkt stæði er í
bílageymslu með rafhleðslustöð.
Göngufæri í leik- og grunnskóla, baðströnd og Jónshús. Fallegar gönguleiðir með fram sjávarsíðuna og í Gálgahrauninu.
Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar fasteignasali í S: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is Nánari lýsing:Forstofa/anddyri: Komið er inn í anddyri með flæðandi harðparketi á gólfi og loftháum þreföldum fataskápum frá Axis.
Eldhús: Bjart og rúmgott eldhús með vandaðri eldhúsinnréttingu með eyju og einkar góðu skápaplássi. Innbyggður ísskápur, frystir og uppþvottavél, helluborð, háfur og bakaraofn í vinnuhæð.
Borðstofa/stofa: Bjartar og rúmgóðar stofur með stórum gluggum og harðparketi á gólfi. Borðstofupláss er innan af eldhúsi með harðparket á gólfi og stórir gluggar birta upp rýmið.
Hol/svefnherbergisgangur: Rúmgott hol með parketi á gólfi tengir saman herbergi eignar. Eigendur hagnýta rýmið einnig undir
skrifstofu.
Hjónaherbergi: Hjónaherbergið er rúmgott með loftháum sexföldum fataskáp og harðparketi á gólfi. Frá hjónaherbergi er útgengt á
stóran pall með skjólvegg og nýlegu hliði. Pallurinn snýr út í fallegan sameiginlegan garð.
Svefnherbergi: Að undanskildu hjónaherbergi eru tvö rúmgóð svefnherbergi með tvöföldum loftháum fataskápum og harðparketi á gólfum.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Innrétting með skápum undir handlaug og veggföstum skáp. Handklæðaofn, upphengt salerni og baðkar með sturtuaðstöðu.
Þvottaherbergi: Þvottaherbergið er með ljósum flísum á gólfi og hvítum skápum. Pláss er fyrir þvottavél og þurrkara. Tengi fyrir vask með heitu og köldu vatni og gluggi með opnanlegu fagi.
Geymsla: 7,0 fm. sérgeymsla í kjallara.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.Garður: Stór og fallegur sameiginlegur garður. Góð aðkoma er að húsinu og næg bílastæði í kringum húsið.
Bílageymsla: Sérmerkt bílastæði í lokari bílageymslu. Einnig er bílaþvotta svæði sem eigendur bílageymslu hagnýta til að að þrífa bíla sína ásamt sameiginlegu deilistæði í bílageymslu. Fyrirtækið Ísorka hefur lagt tengi fyrir hleðslustöð rafmagnsbifreiða í bílastæðið.
Frábær eign á góðum stað við sjávarsíðuna. Góðar gönguleiðir eru meðfram sjónum og merktar gönguleiðir í Gálgahrauni. Stutt er í leikskóla, grunnskóla, Jónshús, sundlaug Garðabæjar og alla aðra helstu þjónustu og verslanir á Garðatorgi.
Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar fasteignasali í S: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.