Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.is
Skarðshlíð 2d - Björt og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á fyrstu hæð í Glerárhverfi - stærð 93,7 m² Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og sér geymslu í kjallara.
Lýsing eignar:
Forstofan er með flísum á gólfi og opnu fatahengi.
Eldhúsið er með parketi á gólfi, ljósri málaðri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél og gluggi með góðu útsýni til vesturs.
Stofan er rúmgóð með parketi á gólfi og stórum gluggum til suður og vesturs. Þaðan er gengið út á steyptar suður svalir.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með parket á gólfum og opnanlegum gluggum.
Baðherbergið er með flísum á hluta veggja, ljósri innréttingu, baðkar með sturtutækjum og wc.
Sérgeymsla er í sameign, skráð 7,1 m² að stærð.
Sameiginlegt þvottahúsi er í sameign, sem og
hjóla- og vagnageymslu.Annað:
- Húsið var múrviðgert og málað að utan á árunum 2023-2024
- Frábær staðsetning, stutt er í leik- og grunnskóla, verslunarmiðstöðina Glerártorg sem og verslun Bónus við Langholt
- Ljósleiðari er komin inn og tengdur
- Lagnir hafa verið endurnýjaðar inn á baðherbergi 2022
Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.