Fasteignaleitin
Skráð 29. jan. 2026

Miðstræti 11A

EinbýlishúsSuðurland/Vestmannaeyjar-900
165.8 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
Tilboð
Byggt 2026
Sérinng.
Fasteignanúmer
9999999
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- dora@eyjaeignir.is og Eyjaeignir fasteignasala kynna í almennri sölu: Nú stendur til að hefja framkvæmdir á Miðstræti 11a, sem verður einstaklega fallegt einbýlishús á tveim hæðum í hjarta miðbæjar Vestmannaeyja. Húsið verður byggt úr Durisol hleðslueiningum, það verður með 40 gráðu þaki og  austurkvisti.  Í húsinu verða 4 svefnherbergi, 2 baðherbergi, eldhús, stofa, hol og geymsla.  Stærð efri hæðar verður 75,8m2 og neðri hæðar 90 m2, samtals 165,8 m2. Eignin afhendist uppsteypt með Durison einingarkerfinu, með málmklæðningu á veggjum og þaki. Áltré gluggar og hurðir.  Sökkull og golfplata, gólfplata verður með ísteyptum hitalögnum ( ótengt) Milliveggir á jarhæð verða steyptir, timburstigi á milli hæða. Timbur burðarbitar í milligólfi og 21mm gólfplötur.  Einangrun á milli sperra og gengið frá rakasperru og einnig í kvisti. Lóð verður grófjöfnuð.

Um byggingarefnið Durisol: Hleðslueiningar sem hafa 100 mm einangrun og 120 mm steypurými með járnbendingu.  Byggingarkubbarnir eru unnir og heitpressaðir á umhverfisvænan hátt og eru að rúmlega 80% hluta úr efnum sem annars væri fargað. Þeir hafa þriggja klukkustunda brunaþol samkvæmt Evrópustaðli ( REI 180) Einangrunargildi útveggja er frá 0,28 w/m2K til 0,14W/m2K. Húsin viðhalda því vel varma. Hljóðdempun er góð í húsunum og er það mikilvægir liður í að skapa góða innivist. Þetta á einnig við um hljóðvist á byggingartíma hússins. Efnið er mjög basíkst, það þrífast því ekki mygla og aðrar óværur í því. Byggingarkubbarnir frá PAGO eru CE merkt vara og standast að öllu leyti kröfur íslenskrar byggingarreglugerðar.


Frekari upplýsingar eða beiðni um skilalýsingu á netfangið dora@eyjaeignir.is eða í síma 8611105


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Eyjaeignir fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eyjaeignir
www.eyjareignir.is

Myndir (6)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Garðhús 33
Skoða eignina Garðhús 33
Garðhús 33
112 Reykjavík
174.7 m2
Raðhús
524
781 þ.kr./m2
136.500.000 kr.
Skoða eignina Garðhús 33
Garðhús_33-38.jpg
Skoða eignina Garðhús 33
Garðhús 33
112 Reykjavík
174.7 m2
Raðhús
524
781 þ.kr./m2
136.500.000 kr.
Skoða eignina Byggðavegur 101f
Byggðavegur 101f
600 Akureyri
166.8 m2
Raðhús
524
527 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Skoða eignina Tjarnabraut 30
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Tjarnabraut 30
Tjarnabraut 30
260 Reykjanesbær
168.9 m2
Einbýlishús
524
739 þ.kr./m2
124.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin