Fasteignaleitin
Skráð 9. júlí 2026

Blikastígur 19

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-225
307.8 m2
10 Herb.
7 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
250.000.000 kr.
Fermetraverð
812.216 kr./m2
Brunabótamat
188.700.000 kr.
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
22999291
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Tveir inngangar

Eignamiðlun kynnir:

Glæsilegt og vandað 307,8 fm einbýlishús á einstaklega fallegum stað við sjávarsíðuna á norðanverðu Álftanesi. Eignin stendur á 1.147 fm eignarlóð við fjörukambinn og nýtur einstaks sjávar- og fjallaútsýnis, m.a. yfir Reykjanesskaga, Faxaflóa, Snæfellsnes, Akrafjall, Esjuna og hluta höfðuborgarsvæðisins.

Eignin skiptist í rúmgóða aðalíbúð, sjálfstæða um 61 fm aukaíbúð með sérinngangi og 50,5 fm bílskúr með geymslulofti. Frá efri hæð eru um 61 fm útsýnis- og sólarsvalir með heitum potti.

Skipulag hússins býður upp á einstakan sveigjanleika. Aukaíbúðin hefur í dag leyfi til reksturs gististaðar í flokki II og er nýtt til skammtímaútleigu. Hún hentar einnig vel fyrir fjölskyldumeðlimi eða sem sjálfstætt íbúðarrými. Auðvelt er að opna á milli íbúðanna og sameina þær í eina samfellda fjölskyldueign.

Húsið er teiknað af Sveini Ívarssyni arkitekt. Það er byggt úr forsteyptum einingum frá Smellinn og frágengið að utan með steiningu, sem gerir það að mestu viðhaldsfrítt. Þak er klætt stallaðri álklæðingu. Í húsinu eru sérsmíðaðar eikarinnréttingar, náttúrusteinn á meginhluta gólfa og eikarparket í svefnherbergjum. Gólfhiti er í öllu húsinu með þremur Danfoss-hitastýrikerfum og þráðlausri hitastýringu. Loftljós eru tengd Pljed snjalllýsingarkerfi.

Nánari lýsing
Aðalíbúðin: Komið er inn í rúmgóða forstofu með tvöföldum fataskáp og opnu fatahengi. Þaðan tekur við hol sem tengir saman rýmin á neðri hæð hússins. Á hæðinni eru tvö svefnherbergi, annað þeirra með góðu skápaplássi, snyrting og þvottahús. Stofa, borðstofa og eldhús mynda opið og bjart alrými með stórum gólfsíðum gluggum til suðurs og vesturs og útgengi í suðurgarðinn. Eldhúsið nýtur aðgreiningar frá stofu með frístandandi vegg án þess að skerða birtu.

Úr holinu liggur stigi upp á efri hæð. Þar er rúmgott fjölskyldurými og þrjú svefnherbergi, þar á meðal einstaklega rúmgott hjónaherbergi með góðu skápaplássi og tvö barnaherbergi með fataskápum. Á hæðinni er einnig baðherbergi sem nýlega var endurnýjað með miklum metnaði og vönduðu efnisvali. Þar eru frístandandi baðkar, sturta og falleg sérsmíðuð innrétting. Frá fjölskyldurýminu og hjónaherberginu er útgengt á um 61 fm útsýnis- og sólarsvalir með heitum potti. Efri hæð hússins nýtur útsýnisins til fulls, bæði frá fjölskyldurýminu, hjónaherberginu og rúmgóðum svölunum.

Aukaíbúðin:  Aukaíbúðin hefur sérinngang og er innréttuð með rúmgóðri forstofu með góðu skápaplássi, stofu, eldhúsi, svefnherbergi með stórum fataskáp, baðherbergi með baðkari og sturtu og geymslu með glugga sem er í dag nýtt sem svefnherbergi og þar er jafnframt tengi fyrir þvottavél.

Íbúðin hefur verið nýtt með góðum árangri til skammtímaútleigu. Fyrir þá sem kjósa að nýta eignina sem eitt stórt heimili er jafnframt einfalt að opna á milli íbúðanna.

Bílskúr: Rúmgóður 50,5 fm bílskúr með hárri fjarstýrðri innkeyrsluhurð og gluggum til vesturs og norðurs. Gott geymsluloft er yfir tæplega hálfum bílskúrnum með traustum stiga upp á loftið. Vönduð innrétting með djúpum vaski og heitu og köldu vatni. Tvær rafhleðslustöðvar eru í bílskúr.

Lóð: Innkeyrsla og bílastæði eru hellulögð og snjóbræðslukerfi í bílastæðum. Stór pallur snýr til suðurs og vesturs og er afmarkaður af upphækkuðum blómakerjum og skjólveggjum. Á lóðinni stendur einnig lítill einangraður timburkofi sem nú er nýttur sem hænsnakofi en var áður leikkofi fyrir börn.
Lóðin liggur að fjörukambinum þar sem er náttúruleg sandfjara, fjölbreytt fuglalíf og oft má sjá seli hvíla á klöppum skammt frá landi. Aðgengi niður í fjöruna er um tröllatröppur við húsið. Mögulegt hefur verið að leigja aðliggjandi beitarhaga fyrir hesta. Þar er einnig fjölskrúðugt fuglalíf þar sem hundruð margæsa koma við á vorin.

Staðurinn er einstaklega heppilegur til að njóta kyrrðar, náttúrunnar og stórbrotins útsýnis allt árið um kring, hvort sem er við norðurljós, stjörnubjartan vetrarhiminn eða bjartar sumarnætur við sjóinn.

Nánari upplýsingar veitir Hilmar Þór Hafsteinsson Lögg. fasteignasali/leigumiðlari, í síma 824-9098, tölvupóstur hilmar@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (85)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Gunnarssund 4
Skoða eignina Gunnarssund 4
Gunnarssund 4
220 Hafnarfjörður
225.5 m2
Einbýlishús
634
665 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Lofnarbrunnur 28
IMG_1592.JPG
Skoða eignina Lofnarbrunnur 28
Lofnarbrunnur 28
113 Reykjavík
213.8 m2
Raðhús
423
758 þ.kr./m2
162.000.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 2 (308)
Bílastæði
Opið hús:12. júlí kl 14:00-14:45
Vetrarbraut 2 (308)
210 Garðabær
61.8 m2
Fjölbýlishús
211
1163 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Skoða eignina Hvassahraun 16
Bílskúr
Skoða eignina Hvassahraun 16
Hvassahraun 16
191 Vogar
152.9 m2
Einbýlishús
423
Fasteignamat 31.250.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin