Fasteignaleitin
Opið hús:21. okt. kl 17:00-17:30
Skráð 18. júlí 2025

Kleppsvegur 50

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
102.4 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
682.617 kr./m2
Fasteignamat
72.250.000 kr.
Brunabótamat
53.500.000 kr.
Mynd af Snorri Björn Sturluson
Snorri Björn Sturluson
Hdl., Löggiltur fasteignasali. Eigandi.
http://valholl.isEignalisti
Byggt 1957
4. hæð · efsta
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2016390
Landnúmer
103974
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
04
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunanlegt
Raflagnir
Upprunanlegt
Frárennslislagnir
Upprunanlegt
Gluggar / Gler
Hluti endurnýjaður
Þak
Endurnýjað þakjárn og þakpappi.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðursvalir
Lóð
4
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Rætt um að finna betri lausn fyrir ruslatunnur, t.d. djúpgáma, en ekki ákveðið.
Skv. fundargerð 20.03.2025 var ákveðið að fá Verksýn verkfræðistofu til að skoða ytri birgðir hússins og pípulagningafyrirtæki til að skoða pípulagnir.
Verksýn verkfræðistofa tók út húsið í júní 2025 sjá ástandsskýrslu. Ekki komin skoðun frá pípulagningafyrirtæki.

Ný hurð verður sett milli íbúðar og stigahúss ásamt því að gert er ráð fyrir að mála stigahús og teppaleggja.
Húsfundur í apríl 2026 samþykkir eftirfarandi:
Að afla tilboða í gluggaviðgerðir og fara í þær framkvæmdir
Að afla tilboða í uppgerð á rafmagnstöflu
Að kaupa nýja sláttuvél
Setja ný leiktæki í garðinn (borgað með inneign í hússjóði).

 
Gallar
Hurð inn í íbúð er eldri og ekki eldvarnarhurð.
Gólf íbúðar voru ekki flotuð við endyrnyjun gólfefna og parketið gefur aðeins eftir á nokkrum stöðum  þegar gengið er um gólfið.
Kvöð / kvaðir
Lýsing úr eignaskiptasamningi: 
  • Við eigum á lóðinni nr. 46, 48 og 50 við Kleppsveg í Reykjavík í sambyggingu 25 — tuttugu og fimm — íbúðarhús, og er ein af íbúðunum í kjallara. Húsið er kjallari og 4 hæðir og gert með 3 stigagöngum. Fyrir 4 íbúðir hvoru megin við hvert stigahús, 1 á hverri hæð. Verða þannig á 1.–4. hæð 24 — tuttugu og fjórar — íbúðir, og eru þær númeraðar 1–8 í austurhúsi, 9–16 í miðhúsi og 17–24 í vesturhúsi.Er hver þessara íbúða af stærð fimm herbergi og eldhús, ásamt baði, geymslu og frystihólfi, svagangi að þvottahúsi, þvottaherbergi, strokherbergi, geymsluhúsi fyrir barnavagna og reiðhjól og vinnuherbergi (sameignarrými), að er í kjallara í vesturhúsi ein íbúð, nr. 25, jafnstór hinum 24 og fylgir henni allt hið sama og þeim.Hver umrædd íbúð telst vera 1/25 — einn tuttugasti og fimmti — hluti af allri fasteigninni.
  • d. Íbúð nr. 4 er á 4. hæð austanmegin í austurhúsi og er hún eign Guðmundar Jónssonar. Íbúð þessari fylgir geymsla nr. 4 og frystihólf nr. 4 í kjallara hússins.
Mikið útsýni - Íbúðin er laus til afhendingar

Valhöll kynnir bjarta og vel skipulagða 4 - 5 herbergja íbúð á efstu hæð með miklu útsýni á Kleppsvegi 50, 105 Reykjavík. Gott útsýni til norðurs í átt að Esjunni og yfir sundin og einnig til suðurs í átt að Laugardalnum. 

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA MYNDBAND AF EIGNINNI


Íbúðin er á 4. hæð (efstu hæð) með stórum suðursvölum. Útgengi er út á svalir frá stofu og hjónaherbergi. Í dag er íbúðin með 2 svefnherbergjum en var með 3 upprunalega og er auðvelt að breyta til fyrra horfs. Þá er einnig mögulegt að bæta við 4 svefnherberginu með því að setja upp einn vegg. 

Stærð íbúðar er uppgefin 102,4 fm en að auki er um 10 fm geymsla í kjallara. Eignin er því í heildina um 112,4 fm.


Vorið 2026 var íbúðin endurnýjuð að hluta að innan og lítur vel út. Þá var sett nýtt parket og gólflistar, hurðar, tenglar og rofar.

Ytra byrði hússins hefur verið ágætilega viðhaldið á síðustu árum, sjá nánar neðar í lýsingu.


NÁNARI LÝSING
Forstofa: opin við gang með parket á gólfi.
Stofa/ borðstofa: rúmgott alrými með stórum og björtum gluggum til suðurs, parketi á gólfi og útgengi á góðar suðursvalir.
Eldhús: með ljósri viðarinnréttingu, tengi fyrir þvottavél, borðkrók og korki á gólfi.
Baðherbergi: með baðkari, innréttingu og flísum á gólfi og veggjum.
Gangur: með parketi á gólfi.
Svefnherbergi 1: hjónaherbergi með fataskápum, parketi á gólfi og útgengi á suðursvalir. 
Svefnherbergi 2: rúmgott herbergi með parketi á gólfi.

Sérgeymsla: er í kjallara, um 10 fm að stærð og utan uppgefinnar fermetratölu eignar. 
Sameign: Í kjallara hússins er rúmgott þvottahús og þurrkherbergi. Einnig mjög stórt aukaherbergi sem er notað til m.a. húsfunda. Hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð. Stór gróinn garður til suðurs.
Skv. eignaskiptasamningi dags. 11.12.1964 er hver íbúð 1/25 í hlutdeild af öllu húsinu 46, 48 og 50 við Kleppsveg í Reykjavík eða 4%.

Viðhald á húsi undanfarin ár:
2021: Skólplagnir myndaðar og fóðraðar í framhaldi en hluti endurnýjaðar.
2018: Dren endurnýjað að framanverðu og endursteypt stétt.
2017-2018: Endurnýjað þakjárn er  á húsinu, skipt hefur verið um marga glugga og margar svalahurðir á suðurhlið hússins. Stofugluggar og aðrir gluggar yfirfarnir og lagaðir. Gluggar á norðurhlið voru yfirfarnir og lagaðir þar sem þurfti. Húsið yfirfarið að utan, múrviðgerðir á veggjum hússins, timburverk málað. Svalahandrið var endurnýjað og sett gler innan á handriðið.


Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Margrét Gísladóttir aðstoðarmaður fasteignasala í síma 616-9552 eða á netfangið gudrun@valholl.is

Snorri Björn Sturluson fasteignasali / lögfræðingur í síma 699-4407 eða á netfangið snorribs@valholl.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (30)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bolholt 9
Bílastæði
Opið hús:22. okt. kl 16:30-17:00
Skoða eignina Bolholt 9
Bolholt 9
105 Reykjavík
92,3 m2
Fjölbýlishús
312
1073 þ.kr./m2
99.000.000 kr.
Skoða eignina Bolholt 9
Bílastæði
Opið hús:22. okt. kl 16:30-17:00
Skoða eignina Bolholt 9
Bolholt 9
105 Reykjavík
91,7 m2
Fjölbýlishús
312
971 þ.kr./m2
89.000.000 kr.
Skoða eignina Bolholt 9
Bílastæði
Opið hús:22. okt. kl 16:30-17:00
Skoða eignina Bolholt 9
Bolholt 9
105 Reykjavík
92,2 m2
Fjölbýlishús
312
965 þ.kr./m2
89.000.000 kr.
Skoða eignina Bolholt 7
Bílastæði
Opið hús:22. okt. kl 16:30-17:00
Skoða eignina Bolholt 7
Bolholt 7
105 Reykjavík
112 m2
Fjölbýlishús
413
1018 þ.kr./m2
114.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin