Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is - Kynnir til sölu - Nýjar íbúðir að Sindragötu 4B Ísafirði, fjölbýlishús í byggingu með níu íbúðum og lyftu, þar af eru 8 þriggja herbergja íbúðir og ein tveggja herbergja íbúð. Eignirnar afhendast fullbúnar í apríl 2027.
Íbúðir 203 og 303 eru 88,2 fm að stærð, þær eru í norðurenda hússins og eru með ágætt útsýni til norðurs og suðurs.
Forstofugangur með fataskáp. Opið eldhús með innréttingu og tækjum. Opin stofa með útgengi á yfirbyggðar svalir sem snúa í vestur með útsýni yfir fjörðinn.
Tvö rúmgóð svefnherbergi með góðum fataskápum.
Geymsla, baðherbergi með sturtu, þvottaaðstaða á baði.
Sameign að innanverðu samanstendur af inngangi, hjóla og vagnageymslu og stigagangi auk lyftunnar.
Kaupverð er 63.1 mkr
Byggingarlýsing:
Sindragata 4B Ísafirði er íbúðarhús á þremur hæðum með alls 9 íbúðum, hjóla- og
vagngeymslu, stigahúsi, anddyri og lyftu. Húsið verður byggt úr KLT, krosslímdumtimbureiningum. Útveggir verða KLT, einangraðir að utan með steinull og klætt bárujárni. Innveggir verða KLT og blikkstoðaveggir. Allir innveggir og loft verða klædd
með 12mm gipsftrefjaplötum og hvergi verða KLT einingar sjáanlegar. Gólfplata jarðhæðar verður staðsteypt og einangruð undir og meðfram sökkulveggjum. Loftaplötur milli hæða (1-2 og 2-3) verða KLT og þak verður einnig gert úr KLT timbureiningum, einangrað að utan með 220 mm þakull og pappaklætt (halli 7°). Gluggar og hurðir verða álklæddir timburgluggar í ljósgráum lit. Allar íbúðir hafa aðgang að lokuðum svölum. Gólfhiti verður í húsinu. Neysluvatnslagnir verða rör í rör. Festingar verða samkvæmt útreikningum buðarþolshönnuða. Aðalinngangur hússin verður á suð-austurhlið. Gengið er þar inn í anddyri og þaðan inn á stigagang þar sem einnig er lyfta. Á hverri hæð verða þrjár íbúðir, aðgengilegar frá miðlægum stigagangi eða lyftu. Loftræstikerfi er í öllu húsinu.
Algild hönnun: Allar dyr verða án þröskuldar og sjálfopnandi á rofa í sameign. Hjólastólaaðgengi verður á öllum hæðum. Umferðarbreidd innihurða er a.m.k. 0,9 m.
Allar íbúðir munu hafa a.m.k. eitt herbergi með snúningssvæði fyrir hjólastól við hlið rúms. Allir gangar verða a.m.k. 1,1 m breiðir.
Skilalýsing:
Burðarvirki hússins er úr krosslímdum timbureiningum í samstarfi við Element ehf.
Framleiðandi er KLH Massivholz í Austurríki, sem er brautryðjandinn í framleiðslu á krosslímdu timbri í heiminum.
Hráefnið, timbrið, er fengið úr sjálfbærum evrópskum skógum og bera einingarnar PEFC vottun óháðs aðila þar um.
Einingarnar eru CE vottaðar í samræmi við kröfu byggingareglugerðar.
Einingarnar eru Svansvottaðar og eru seldar undir vörumerkinu “KLH® - CLT Spruce Swan Eco”.
Utan á útveggjaeiningum er öndunardúkur, KLH Protect, sem ver timbrið á byggingartíma og notaður er til að loftþétta bygginguna. KLH Protect leyfir timbrinu að anda í gegnum sig en hleypir ekki raka inn í timbrið.
Húsið er einangrað að utan með íslenskri steinull. Burðarkerfi klæðningar og báruklæðningin sjálf eru úr lituðu stáli.
Sökklar og botnplata eru staðsteypt.
1. Frágangur innanhúss
1.1. Gólfefni
Íbúðirnar sjálfar verða afhentar með gólfefnum. Parket verður á öllum rýmum nema á baðherbergi / baðherbergjum verða flísar.
1.2. Veggir
Útveggir íbúða að innan eru klæddir með Fermacell plötum, með eldvarnar vottun A2. Innveggir eru krosslímdar einingar klæddir beggja vegna með fermacell. Veggir eru almennt spartlaðir, grunnaðir og málaðir hvítir með tveimur yfirferðum af hvítri plastmálningu.
1.3. Loft
Loft eru úr krosslímdum einingum. Loft eru grunnuð og máluð með tveimur yfirferðum af plastmálningu eða sambærilegri málningu. Loft og veggir á baðherbergjum eru meðhöndluð á sama hátt og máluð með viðurkenndri votrýmismálningu þar sem við á.
1.4. Gler og gluggar
Tvöfalt hefðbundið gasfyllt einangrunargler er í öllum gluggum. Ábyrgð framleiðanda er samkvæmt skilmálum söluaðila. Gluggar eru ál-tré gluggar.
1.5. Sólbekkir
Sólbekkir verða þar sem við á.
1.6. Hurðir
Inngangshurðir eru EI-60 inn í íbúðirnar og verða spónlagðar eða sprautulakkaðar, Innihurðar eru sprautulakkaðar/spónlagðar, með gereftum.
1.7. Fataskápar
Fataskápar eru í svefnherbergjum og forstofu. Innréttingar verða frá viðurkenndum aðila. Lamir og brautir verða með ljúflokum.
1.8. Eldhús
Eldhúsinnrétting verður frá viðurkenndum aðila. Borðplötur verða 30 mm plastlagðar m/acrýl kanti F32. Lamir og brautir verða með ljúflokum. Blöndunartæki í innréttingu eru einnar handa tæki. Vaskar verða af viðurkenndri gerð úr riðfríu stál með burstaða áferð og felldir í borðplötu. Öll eldhústæki verða frá viðurkenndum aðila og a.m.k. í orkuflokki A.
1.9. Baðherbergi
Á baðherbergi er gólf flísalagt og veggir flísalagðir að hluta. Flísalagðir veggir ná upp í c.a. 2 m hæð. Innrétting verður frá viðurkenndum aðila. Handlaug er í innréttingu ásamt einnar handar blöndunartæki frá viðurkenndum aðila. Upp hengt og innbyggt salerni ásamt flísalögðum sturtubotni. Blöndunartæki verður í sturtu frá viðurkenndum aðila.
1.10. Þvottaaðstaða
Þvottaaðstaða er hluti af baðherbergi. Gert er ráð fyrir barkalausum þurrkara.
1.11. Sérgeymsla - Geymsla er í hverri íbúð.
1.12. Hitakerfi - Íbúðirnar eru upphitaðar með gólfhitakerfi. Sameign er einnig með ofnakerfi gólfhitakerfi.
1.13. Loftræsi-, vatns- og þrifalagnir - Loftræsi-, vatns, - og þrifalagnir fylgja frágengnar skv. teikningum. Forhitari er á heitu neysluvatni. Vélræn loftræsing (út sog) er í rýmum þar sem við á en annars er um náttúrulega loftræsingu að ræða.
1.14. Raflagnir, net og lýsing - Rafmagns- og fjarskiptalagnir eru í samræmi við fyrirliggjandi uppdrætti rafmagnshönnuðar.
2. Frágangur sameignar
2.1. Anddyri og stigahús - Gólf í anddyri er dúklagt með uppsettum póstkössum og dyrabjöllum. Stigar og stigapallar eru dúklagðir. Á stigum og pöllum eru uppsett handrið. Raflögn í sameign fylgir frágengin með ljósa kúplum skv. teikningum ásamt lýsingu í lofti þar sem við á.
2.2. Hurðir - Allar útihurðar fylgja frágengnar. Aðalhurðir og innri anddyrishurðir eru úr áli og með rafmagnsopnun.
2.3. Lyfta - Fólkslyfta er í húsinu og verður tilbúin til notkunar í stigahúsi.
2.5. Hjóla- og vagnageymslur - Sameiginlega hjóla- og vagnageymsla er í húsinu. Gólf eru slípuð og máluð.
2.6. Sorp og sorpgeymslur - Sameiginlegt sorpskýli á lóð. Gólf eru slípuð og epoxy máluð.
3. Frágangur utanhúss
3.1. Klæðning og einangrun - Útveggir verða einangraðir að utan með 100mm harðpressaðri steinull, og klæddir með litaðri bárujárns klæðningu í samræmi við teikningar.
3.2. Þak - Þak eru úr krosslímdum einingum með á límdum þakpappa. Einangrun er hefðbundin samkvæmt bygginga stöðlum.
3.3. Svalir - Svalir verða yfirbyggðar.
3.5. Lóð og bílastæði - Lóð verður fullfrágengin samkvæmt leiðbeinandi teikningu arkitekts. Eitt bílastæði á hverja íbúð.
4. Hönnuðir - Arkitektar: Sei ehf. 101 Reykjavík.
5. Byggingaraðili - Vestfirskir Verktakar ehf. er byggingaraðili.
6. Afhendingartími - Apríl 2027.