Móeiður Svala lögg. fasteignasali og Miklaborg kynna í einkasölu: Bæjargötu 17.
Glæsilegt og vel skipulagt 207,1 fm raðhús á tveimur hæðum með bílskúr í Urriðaholti, á einstökum útsýnisstað.
Húsið stendur á skjólsælum stað við Bæjargötu 17, 210 Garðabæ. Suðvestursvalir með óhindruðu útsýni og pallur í suðaustur. Eignin býður upp á fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi og frábært skápapláss.
Gólfhiti er í öllu húsinu, einnig í bílskúr, ásamt aukinni lofthæð og öllum hurðum yfir venjulegri hæð. Free@home hússtjórnarkerfi er í húsinu og hljóðdúkur í lofti í stofu, eldhúsi og hjónaherbergi.
Allar innréttingar, fataskápar og innihurðir eru af betri gerðinni frá GKS. Kvartssteinn er í eldhúsi og baðherbergjum. Innihurðir eru með innbyggðum felliþröskuldum.
Fjarstýrð gluggatjöld eru í þakgluggum. og á svölum er rafdrifin markísa með innbyggðri lýsingu og hitara. Ný pergóla er yfir hluta bakgarðsins og útiflísar eru bæði í bakgarði og á svölum.
Rafdrifin bílskúrshurð, hleðslustöð fyrir rafbíla og nóg af bílastæðum.
Bókaðu skoðun! Allar nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 899-8278 eða moa@miklaborg.is
Nánari lýsing:
Húsið er skráð 207,1 fm, þar af er bílskúr skráður 27,5 fm. Húsið var byggt árið 2018 og stendur fyrir ofan Urriðavatn á frábærum útsýnisstað. Frá efri hæðinni er einstaklega glæsilegt útsýni yfir Urriðavatn og víðar.
Húsið skiptist m.a. í stofu, borðstofu, eldhús, fjögur rúmgóð herbergi, tvö baðherbergi, þvottahús og bílskúr með millilofti.
Eignin hefur verið innréttuð á sérlega vandaðan og smekklegan hátt þar sem hvergi hefur verið til sparað. Vönduð tæki og sérsmíðaðar innréttingar frá GKS með óbeinni lýsingu undir borðplötu. Gólfhiti er í öllu húsinu ásamt bílskúr, aukin lofthæð og glæsilegt útsýni. Harðparket er frá Harðviðarval.
Rafdrifin bílskúrshurð, hleðslustöð fyrir rafbíla, snjóbræðslukerfi í bílaplani og nóg af bílastæðum.
Anddyri:
Komið er inn í flísalagt anddyri. Til hægri er svefnherbergi, þvottahús og geymsla. Til vinstri eru rúmgóðir fataskápar og baðherbergi. Beint áfram tekur á móti þér stiginn upp á efri hæðina. Upp miðjan stigann er gengið út á stóran pall í bakgarðinum. Pallurinn er lagður með glæsilegum útiflísum og ný pergóla er yfir hluta.
Svefnherbergi 1:
Á neðri hæð er mjög rúmgott svefnherbergi, um 20 fm. Harðparket er á gólfi.
Baðherbergi:
Baðherbergið er með glæsilegri innréttingu, kvartssteini á borðum og góðum speglaskápum. Flísalagt hólf og gólf, wallk-in sturta og baðkar.
Þvottahús:
Þvottahúsið er vel útbúið með vaski og góðum skápum. Pláss er fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð í innréttingunni. Flísar á gólfi.
Geymsla:
Geymsla er inn af þvottahúsi með góðu skápaplássi.
Bílskúr:
Innrétting með vaski, flísar á gólfi, milliloft, gólfhiti, hleðslustöð og sjálfvirk hurðaopnun.
Teppalagður stigi með glerhandriði er á milli hæða.
Alrými:
Stofa, borðstofa og eldhús eru samliggjandi í alrými. Harðparket er á gólfi. Mjög falleg og vönduð innrétting frá GKS ásamt stórri eyju með miklu skápaplássi.
Tveir ofnar eru í vinnuhæð, spanhelluborð, innbyggð uppþvottavél og tvöfaldur ísskápur. Kvartssteinn er á borðum.
Mjög björt stofa með mikilli lofthæð. Sérsmíðuð hilla í stofu með innbyggðri lýsingu hönnuð af Sæju. Gengið er út á suðvestursvalir frá stofunni, þar er rafdrifin markísa með innbyggðri lýsingu og hitara. Glæsilegt útsýni er yfir Urriðavatn og víðar.
Hjónaherbergi:
Hátt til lofts með miklum og góðum skápum. Harðparket er á gólfi.
Baðherbergi 2:
Falleg innrétting með speglaskápum og kvartssteini á borði. Flísalagt í hólf og gólf og sturta.
Svefnherbergi 3:
Rúmgott herbergi með fataskáp og glugga í suðaustur. Harðparket er á gólfi.
Svefnherbergi 4:
Gluggi í suðvestur með æðislegu útsýni. Harðparket er á gólfi. (Merkt sem borðstofa á teikningu, léttur veggur sem lítið mál er að fjarlægja)
Urriðaholt í Garðabæ er umkringt óspilltri náttúru en um leið í nálægð við góðar samgönguæðar og sérlega vel staðsett innan höfuðborgarsvæðisins.
Í göngufæri er Urriðaholtsskóli sem starfar á tveimur skólastigum, leik- og grunnskólastigi, og verslanir eru í næsta nágrenni.
Draumastaður fyrir golfáhugafólk - þrír golfklúbbar, Oddur, GSE og GKG, allir í innan við 10 mínútna fjarlægð.
Urriðaholt nýtur þess að náttúran umlykur hverfið á þrenna vegu; Vífilsstaðahraun að norðanverðu, Heiðmörk til austurs og Hádegisholt og Urriðavatn í suður og suðvestur.
Bókaðu skoðun! Allar nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 899-8278 eða moa@miklaborg.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 12/02/2018 | 43.700.000 kr. | 88.800.000 kr. | 207.1 m2 | 428.778 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
200 | 210,1 | 157,9 | ||
210 | 207,1 | 207,9 | ||
210 | 180,5 | 129,5 | ||
210 | 180,5 | 129,5 | ||
210 | 179,5 | 214,9 | ||
200 | 131,5 | 123 |