Fasteignaleitin
Skráð 3. nóv. 2026

Reykjavíkurvegur 64

Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
469.6 m2
Verð
Tilboð
Fasteignamat
140.800.000 kr.
Brunabótamat
156.150.000 kr.
Byggt 1972
2. hæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2078656
Landnúmer
122157
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Leigulóð
Inngangur
Sameiginlegur
Valborg ehf kynnir eignina Reykjavíkurvegur 64, 220 Hafnarfjörður, til LEIGU EÐA SÖLU, nánar tiltekið eign merkt 02-01, fastanúmer 207-8656 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Um er að ræða um 469 ferm í 3 einingum á annarri hæð sem hægt væri að leigja hvert í sínu lagi.  Engin vsk kvöð.  Næg bílastæði.  Sjá nánar lýsingu hér fyrir neðan. Bókið skoðun.
 
Gengið er inn í eignina úr sameiginlegum inngangi af jarðhæð. Rýmið er alls 469 fermetrar að stærð - þar af er sameign áætluð um 40 fermetrar. Allur burður í húsinu er á súlum þannig að breyta má skipulagi hæðarinnar að vild og sameina í eina eða fleiri hluta. Húsnæðið skiptist í dag í þrjár leigueiningar sem hver er með salerni og eldhúskrók. 

Nánari upplýsingar veitir Elvar Guðjónsson viðskfr. og lögg fast sali, í síma 8954000, tölvupóstur elvar@valborgfs.is.

Nánari lýsing:
Rými 1: Stærð þessar hluta hússins er um 270 fermetrar og skiptist það í 6 skrifstofur (ein þó án glugga), opið verslunarrými í miðjunni auk eldhúss og baðherbergis. Tvær af þessum skrifstofum eru mjög stórar (sirka 20-25fermetra hvor með stórum gluggum). Lageraðstaða er í enda rýmissins sem er aðgengilegt frá kjallara hússins (gengið inn úr porti á bakvið). Opið nær því í gengum 1. hæðina og alla leið niður í kjallara. Hægt er að hífa vörur upp með talíu sem er til staðar og getur rýmið því nýst vel fyrir verslunarrekstur eða þjónustu. Nýlegt harðparket er á stærstum hluta þessa rýmis. Þessi hluti hússins snýr í vestur.

Rými 2: Þessi hluti hússins snýr í austur en þegar inn er komið blasir við flísalagður gangur þar sem eldhús og salerni eru við enda hans. Strax á hægri hönd er svo stór salur sem nýta má sem opið vinnurými eða veislusal. Parket er á gólfi salarins. Stærð þessa rýmis er um 100 fermetrar.

Rými 3: Þessi hluti snýr annars vegar í austur og hins vegar í suður. Tveir inngangar eru í þennan hluta en þar eru tvær skristofur, opið rými fyrir framan þær og svo eldhúsaðstaða og salerni. Úr þessu rými er hægt að ganga út á svalir. Stærð þessa hluta hússins er um 50 fermetrar.




Eignin Reykjavíkurvegur 64 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 207-8656, birt stærð 469.6 fm.

Nánari upplýsingar veitir Elvar Guðjónsson , í síma 8954000, tölvupóstur elvar@valborgfs.is.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.  Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
27/03/2026140.800.000 kr.290.000.000 kr.1069.6 m2271.129 kr.Nei
27/03/2026140.800.000 kr.290.000.000 kr.1069.6 m2271.129 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (15)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Álhella 5
Skoða eignina Álhella 5
Álhella 5
221 Hafnarfjörður
70,3 m2
Atvinnuhúsn.
354 þ.kr./m2
24.900.000 kr.
Skoða eignina Reykjavíkurvegur 64
Reykjavíkurvegur 64
220 Hafnarfjörður
600 m2
Atvinnuhúsn.
Fasteignamat 179.950.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Dofrahella 6
Skoða eignina Dofrahella 6
Dofrahella 6
221 Hafnarfjörður
100 m2
Atvinnuhúsn.
465 þ.kr./m2
46.500.000 kr.
Skoða eignina Straumhella 10L
01-(5).jpg
Skoða eignina Straumhella 10L
Straumhella 10L
221 Hafnarfjörður
57,4 m2
Atvinnuhúsn.
1
469 þ.kr./m2
26.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin