Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu jörðina Stafnshól í Deildardal í Skagafirði. Jörðin er staðsett við mynni Deildardals og er talin vera um 440 ha. Bærinn stendur norðvestan í svonefndri Stafnshólsöxl.
Staðsetning jarðarinnar er einstök og stórkostlegt útsýni er frá jörðinni yfir eyjar Skagafjarðar.
Stafnshóll á land frá Deildardalsá á fjall upp milli landa Skuggabjarga í Deildardal og Tumabrekku í Óslandshlíð. Að vestan á jörðin land að Gröf á Höfðaströnd. Töluvert af landi jarðarinnar er fjalllendi. Landið ofan við merkin að vestan er að mestu lyngmóar og melhólar, en einnig nokkurt graslendi. Ofan þess eru tún og mýrlendi upp í fjallshlíðna sem er fremur hallalítil neðan til og vel gróin. Að öðru leyti er landið að stórum hluta lyng og hrísmóar. Hálfur Hrappadalur tilheyrir jörðinni, móts við Skuggabjörg. Á jörðinni standa íbúðarhús og útihús sem þarfnast verulegs viðhalds. Þá er ekki lagt heitt vatn og leggja þarf nýtt kalt vatn.
Vegalengd í Hofsós er um 6 km. og á Sauðárkrók um 35 km.
Nánari upplýsingar og söluyfirlit hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.