Fasteignaleitin
Skráð 19. nóv. 2025
Deila eign
Deila

Sjávargrund 5B

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
193.7 m2
8 Herb.
6 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
128.900.000 kr.
Fermetraverð
665.462 kr./m2
Fasteignamat
109.750.000 kr.
Brunabótamat
110.570.000 kr.
Mynd af Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Byggt 1992
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2072095
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
5
Vatnslagnir
Að sögn seljanda í lagi
Raflagnir
Að sögn seljanda í lagi
Frárennslislagnir
Að sögn seljanda í lagi
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Þak málað og yfirfarið 2021
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Tvennar svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Sérlega skemmtileg tveggja hæða íbúð með bílastæði í bílakjallara með frábæru útsýni til vesturs og norðurs og tvennum svölum. Fimm svefnherbergi öll rúmgóð.  Eignin nýtist einstaklega vel, stofur eru bjartar og skemmtilegar með mikilli lofthæð að hluta til, glæsilegur sérsmíðaður stigi setur mikinn svip á rýmið og tengir efri hæðina einstaklega vel við neðri hæðina. Stór geymsla innaf bílastæði íbúðarinnar nýtist mjög vel. Stórglæsileg íbúð þar sem ekkert hefur verið til sparað.

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 193,7fm. og þar af er geymsla skráð 13fm. og bílastæði í bílakjallara 20,5fm. Neðri hæð íbúðarinnar er skráð 124,4 fermetrar og efri hæð er skráð 69,4 fermetrar en gólfflötur er meiri, þar sem efri hæðin er að hluta til undir súð.
Fasteignamat fyrir árið 2026 verður 120.450.000kr. 


Nánari lýsing: 
Aðkoma að húsinu er mjög sjarmerandi og deilir þessi íbúð inngangi með aðeins einni annarri íbúð. Komið er inn í snyrtilega og vel um gengna sameign þar sem gengið er upp eina hæð í íbúðina og niður eina hæð í geymslu og bílakjallara.
Forstofa með fatahengi og flísum á gólfi. 
Borðstofa björt og rúmgóð með mikillri lofthæð, stórum gólfsíðum gluggum og nýlegri rennihurð þar sem útgengt er út á svalir til suðurs. 
Eldhús með mikillri lofthæð, hvít innrétting, steinn á öllum borðflötum, viðarklæðning á hluta veggja, helluborð, gufugleypir, ofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél og flísar á gólfi. Mikið útsýni til Esjunnar er úr eldhúsinu. 
Stofa rúmgóð og björt með fallegu útsýni til norðurs, parket á gólfi. Útgengt er úr stofunni út á stórar svalir til norðurs. 
Svefnherbergi á hæðinni eru þrjú,  öll rúmgóð með fataskápum og parket á gólfi. Stórir og bjartir gluggar einkenna herbergin og einstakt útsýni er úr herberginu sem snýr til norðurs.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað með fallegum flísum, innréttingum, nýlegum hreinlætistækjum og vönduðum sturtuklefa.
Þvottahús/gestasnyrting hefur einnig verið endurnýjað með smekklegum hætti, flísar á gólfi, innréttingar og nýleg hreinlætistæki.
Gengið er upp stiga upp í efri hæð íbúðarinnar. Glæsilegur stálstigi setur mikinn svip á rýmið. Staðsettning stiga og hönnun er gerð til að rými efri hæðar nýtist sem allra best.
Hjónasvíta með stóru svefnherbergi, fataherbergi og skrifstofu innaf. Auðvelt væri að breyta fataherberginu í baðherbergi. Sérsniðnir skápar í fataherbergi og svefnherbergi fylgja með eigninni. Á gólfum er parket. 

Í kjallara er bílakjallari en sérinngangur er fyrir íbúðina beint að stæði eignarinnar í bílakjallarann, í gegnum geymslu sem tilheyrir eigninni.
Geymslan er mjög rúmgóð, er skráð 13 fermetrar samkvæmt fasteignamati en er talsvert stærri þar sem tilhögun veggja geymslunnar er með öðrum hætti en fram kemur á upphaflegum teikningu. Geymslan nýtist mjög vel. Stæðið er 20,5 fermetrar.
Íbúðinni fylgir hluteild í sameiginlegri hjólageymslu og sameiginlegri dekkjageymslu inn af bílakjallara.

Í húsinu er öflugt húsfélag og er hugað vel að öllu viðhaldi hússins. 

Hér er um að ræða einstaka eign sem nýtist sérlega vel. Eign sem vert er að skoða

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
22/06/201853.000.000 kr.68.500.000 kr.193.7 m2353.639 kr.
04/04/200737.660.000 kr.35.000.000 kr.193.7 m2180.691 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 1992
20.5 m2
Fasteignanúmer
2072095
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
00
Númer eignar
17
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.220.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Urriðaholtsstræti 13
Bílastæði
Opið hús:06. des. kl 11:00-12:00
Urriðaholtsstræti 13
210 Garðabær
134.8 m2
Fjölbýlishús
322
964 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Urriðaholtsstræti 11
Bílastæði
Opið hús:06. des. kl 11:00-12:00
Urriðaholtsstræti 11
210 Garðabær
142.2 m2
Fjölbýlishús
323
984 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Urriðaholtsstræti 11
Bílastæði
Opið hús:06. des. kl 11:00-12:00
Urriðaholtsstræti 11
210 Garðabær
133.8 m2
Fjölbýlishús
322
993 þ.kr./m2
132.900.000 kr.
Skoða eignina Bjarkarás 7
Bílastæði
Skoða eignina Bjarkarás 7
Bjarkarás 7
210 Garðabær
143 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
312
873 þ.kr./m2
124.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin