Fasteignaleitin
Skráð 9. feb. 2026

Skipasund 18

HæðHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
128 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
92.900.000 kr.
Fermetraverð
725.781 kr./m2
Fasteignamat
89.600.000 kr.
Brunabótamat
65.450.000 kr.
Mynd af Svanþór Einarsson
Svanþór Einarsson
Garður
Bílskúr
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2018095
Landnúmer
104363
Húsgerð
Hæð
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Sjá nánar í lýsingu
Raflagnir
Sjá nánar í lýsingu
Frárennslislagnir
Sjá nánar í lýsingu
Gluggar / Gler
Móða í glerjum
Þak
Sjá nánar í lýsingu
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Á ekki við
Upphitun
Sameiginlegur hiti
Inngangur
Margir inngangar
Kvöð / kvaðir
Afsal, sjá skjal nr. 441-K-000300/2022.
Afsal, sjá skjal nr. 441-C-014290/2022.
Lóðarleigusamningur, sjá skjal nr. 411-S-009341/2006. Endurnýjun lóðarleigusamnings um 585 fm lóð til 75 ára frá 1. jan. 2006 að telja.
Eignaskiptayfirlýsing, sjá skjal nr. 411-T-001906/2013.

Hlutfallstala í matshluta 01 er 63,22%. Hlutfallstala í matshluta 02 er 100%. Hlutfallstala í hitakostnaði er 67,57%. Hlutfallstala í lóð er 68,54%.

Heitt vatn allt í einum reikning fyrir allt húsið þannig eigandi kjallaraíbúðar alltaf greitt mánaðarlega sinn hluta eftir eignahluta. Skv. upplýsingum frá seljanda er ekki starfandi húsfélag.
** Hafðu samband og bókaðu skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 ** 

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Vel skipulögð 128,0 m2 sérhæð og ris ásamt fallegri auka íbúð í bílskúr við Skipasund 18, 104 Reykjavík. Eignin er skráð 128,0 m2 en þar af er íbúð 96,8 m2 og bílskúr 31,2m2. Að auki er talsvert af óskráðum fermetrum. Eignin skiptist í aðal íbúð: Forstofu, eldhús, baðherbergi, stofa, borðstofa, hjónaherbergi og rishæð með 2 svefnherbergjum (hægt að breyta í 3 svefnherbergi). Búið er að breyta bílskúr í íbúð sem skiptist í: Stofu, eldhús, baðherbergi og 2 svefnherbergi. Um er að ræða eign á vinsælum stað þar sem stutt er í leikskóla, skóla, verslun og helstu þjónustu.

Eignin hefur fengið talsvert viðhald skv. upplýsingum frá seljanda: Á árunum 2022-2023 var útbúin íbúð í bílskúr, tröppur lagaðar og veggur múraður. Fyrri eigandi hafði árið 2020 skipt um ofnalagnir. Árið 2019 var húsið drenað. Frárennslislagnir fóðraðar í húsi og endurnýjaðar út í götu. Vatnslagnir endurnýjaðar út í götu. Slökkvarar endurnýjaðir. Rafmagnstafla endurnýjuð. Skipt um tvo ofna í stofu/borðstofu. Árið 2015 endurnýjað þak á bílskúr, endurnýjaður gluggi í risherbergi og gólfplata í bílskúr endursteypt.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.


Nánari lýsing: 
Aðal íbúð:
Gengið er upp útitröppur og inn í óskráð foranddyri sem hefur verið yfirbyggt, þar hefur verið komið fyrir tengi fyrir þvottavél og þurrara.
Forstofa er með flísum á gólfi. Úr forstofu er stigi upp á rishæð.
Eldhús er með flísum á gólfi og innréttingu með stein á borði. Í innréttingu er eldavél með helluborði og viftu. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu.
Baðherbergi er með salerni, baðinnréttingu og sturtu. Flísar á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott, með fataskápum og parket á gólfi. 
Stofa og borðstofa er í opnu rými með parketi á gólfi. 
Geymsla er innan íbúðar undir stiganum. 
Rishæð er í dag svefnherbergi nr. 2-3 og hol en var áður með þremur herbergjum, ásamt geymslum í þakrými. Auðvelt að breyta til baka. Lakkaðar gólffjalir eru á gólfi. 

Auka íbúð (bílskúr):
Komið er inn í opið alrými með parketi á gólfi. 
Eldhús er með fallegri innréttingu. Í innréttingu er ofn og helluborð. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu.
Baðherbergi er með flísum á gólfi, 'walk in' sturtu, innréttingu, salerni og handklæðaofni. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergi 1-2 eru með parketi á gólfi.

Lóð: Stór sameiginlegur garður og hellulagt bílaplan. Búið er að gera ráð fyrir hleðslustöð fyrir utan bílskúr. Barki er klár í rafmagnstöflu og vantar bara að draga í til að tengja. Vatnslögn er úr bílskúr og út í garð fyrir heitum potti. Sér ljósleiðari í bílskúr.

Annað: Árið 2015 voru samþykktar teikningar fyrir viðbyggingu við húsið til suðurs. Ekki var ráðist í stækkunina og er því gildistími byggingaráforma útrunninn. Til upplýsingar: Gert var ráð fyrir stækkun fyrstu hæðar og kjallara, hvort um sig um 15,5 m2, alls 31,0 m2. Þá var gert ráð fyrir gerð 15,9 m2 svölum út frá þakhæð.

Verð kr. 92.900.000,-
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
09/02/202255.950.000 kr.64.000.000 kr.128 m2500.000 kr.
21/01/201530.900.000 kr.45.500.000 kr.194.9 m2233.453 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1950
31.2 m2
Fasteignanúmer
2018095
Byggingarefni
Holsteinn
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
11.650.000 kr.

Myndir (32)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mosagata 15
Bílastæði
Opið hús:17. mars kl 12:15-12:45
Skoða eignina Mosagata 15
Mosagata 15
210 Garðabær
93.5 m2
Fjölbýlishús
32
887 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Mávahlíð 41
Opið hús:17. mars kl 18:00-18:30
Skoða eignina Mávahlíð 41
Mávahlíð 41
105 Reykjavík
95.5 m2
Fjölbýlishús
312
836 þ.kr./m2
79.800.000 kr.
Skoða eignina Geislaskarð 2
3D Sýn
Skoða eignina Geislaskarð 2
Geislaskarð 2
221 Hafnarfjörður
108 m2
Fjölbýlishús
413
727 þ.kr./m2
78.500.000 kr.
Skoða eignina Asparlaut 1
Bílastæði
Skoða eignina Asparlaut 1
Asparlaut 1
230 Reykjanesbær
162 m2
Fjölbýlishús
413
555 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin