Betri Stofan Fasteignasala og Dagrún Davíðsdóttir löggiltur fasteignasali kynna, Grenimel 44 í Vesturbæ Reykjavíkur. Glæsileg efri sérhæð með bílskúr samtals að stærð 184,6 m². Bílskúrinn er 25,6 m².
Gengið upp steyptar tröppur, sérinngangur. Stigi og stigapallur með fallegu teppi, sett á nýtt 2018/2019. Gengið inn í rúmt hol með stórum speglaskápum. Smekklegt gestasalerni með þvottahúsi innaf. Stofa, borðstofa og eldhús saman í opnu rými. Glæsileg innrétting ásamt eyju með kvartstein og nýlegu stóru spanhelluborði. Gengið út á suðursvalir frá stofu. Þrjú svefnherbergi á herbergjagangi ásamt baðherbergi með sturtu. Gengið út úr hjónaherbergi á austursvalir. Tvær geymslur á jarðhæð ásamt bílskúr og sér bílastæði fyrir framan sem rúmar um 3 bíla. Mikið endurnýjuð eign með möguleika á breyta geymslum (sem eru samliggjandi) í leigueiningu.Nánari lýsing:Komið er inn í
forstofu með fallegum stiga og handriði. Rúmgóður pallur með fallegu teppi á. Hurð inn í íbúð og þar er gengið inn í hol með stórum speglafataskáp.
Eldhúsið er mjög rúmgott og bjart með glæsilegri innréttingu frá Kvik (2018). Ofn og örbylgjuofn (keyptur júlí 2025) í standandi hæð. Pláss fyrir tvöfaldan ísskáp. Innbyggð Siemens iq300 uppþvottavél, keypt í maí 2026. Flísar á vegg hjá vaski og kvartsteinn frá Rein. Stór eyja með miklu geymsluplássi undir og kvartsteinn á borðum. Stórt spanhelluborð er á eyjunni, keypt í ágúst 2026.
Borðstofa og
stofa mynda stórt og bjart rými ásamt eldhúsi. Gengið er út á suðursvalir frá stofu. Fallegt parket er á gólfum.
Gestasnyrting í holi er snyrtileg og flísalögð í hólf og gólf. Upphengt salerni ásamt upphengdri innréttingu. Innaf salerni er
þvottahús með góðri aðstöðu og hillum. Flísar á gólfi.
Á svefnherbergisgangi eru 3 svefnherbergi ásamt baðherbergi.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með stórum skápum á tveimur hliðum og útgengt út á austursvalir. Parket á gólfi.
Herbergi I: Ágætt herbergi með parketi á gólfi.
Herbergi II: Gott herbergi með parketi á gólfi og gluggum á tveimur hliðum.
Baðherbergið er með sturtu og upphengdu salerni. Flísalagður kassi með innbyggðum hillum. Upphengd innrétting með handlaug, steinn á borði. stór spegill með lýsingu. Handklæðaofn. Flísalagt í hólf og gólf.
Í
kjallara eru tvær geymslur sem er séreign þessarar eignar. Möguleiki að gera þær að útleigu einingu (lagnir til staðar) þar sem geymslurnar eru samliggjandi.
Bílskúrinn, fjær húsi tilheyrir efri hæðinni. Í bílskúr er kalt vatn, rafmagn og hann er upphitaður. Bílskúr málaður í hólf og gólf 2022. Búið er að uppfæra rafmagnið inn í bílskúr þar sem er hleðslustöð. Rafmagnshurð.
Húsið sem er byggt árið árið 1967. Húsið var yfirfarið 2015/2016 (sprunguviðgert og málað). Þakið var yfirfarið (pappi og járn endurnýjað) á sama tíma og málað.
Þá hefur einnig rafmagn verið endurnýjað inn í íbúð og ásamt rafmagni inn í bílskúr fyrir hleðslustöð. Myndavéla dyrasími í íbúð.
Glæsileg eign á besta stað í Vesturbænum. Rólegur botnlangi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Melabúðin, sundlaug Vesturbæjar, leikskólar og skólar í göngufæri. Eignin Grenimelur 44 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 202-6159, birt stærð 184.6 fm.Nánari upplýsingar veitir Dagrún Davíðsdóttir löggiltur fasteignasali, í síma 866 1763 eða á dagrun@betristofan.is.