Fasteignin við Sævarsstíg 2, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi hlutdeild í sameign og lóðarréttindum.
Íbúð á efri hæð í steyptu tvíbýlishúsi byggðu árið 1931.
Íbúðin er alls 78,2 fm. þar af 18,1 fm. geymsla á jarðhæð.
Leigulóð hússins er 115 fm.
Húsið er einangrað að utanverðu og klætt með ljósu steni efni.
Inngangur um steyptar tröppur að vestanverðu.
Íbúðin skiptist í þrjú herbergi, eldhús, baðherbergi, geymsla/búr og forstofu.
Forstofa er með korkdúk á gólfi.
Herbergi eru öll lögð plastparketi.
Baðherbergi er inn af norðvestan herbergi. Á baðherbergi eru flísar á gólfi og við baðkar. Á veggjum baðherbergis eru plötur. Hvít tæki.
Eldhús er að austanverðu í íbúðinni. Þar er korkdúkur á gólfi, hvít innrétting með beykilistum og borðplötu úr beykilituðu harðplasti.
Geymsla/búr er norðan við eldhús með hillum.
Í öllum loftum eru hvíar plasthúðaðar plötur.
Sér inngangur er í rúmgóða geymslu á neðri hæð sem er óinnréttuð. Þvottavélatengi í geymslu.
Lóð hússins er lítil og er það t.a.m. á lóðarmörkum að vestan.
Íbúðin er í útleigu.
Nánari upplýsingar og söluyfirlit hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali
Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
---|---|---|---|---|---|
09/05/2016 | 8.370.000 kr. | 9.800.000 kr. | 78.2 m2 | 125.319 kr. | Já |
10/11/2008 | 8.170.000 kr. | 8.735.000 kr. | 78.2 m2 | 111.700 kr. | Já |
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
551 | 68 | 20,9 |