Fasteignaleitin
Skráð 8. ágúst 2024

Illagil 13

Jörð/LóðSuðurland/Selfoss-805
Verð
90.000.000 kr.
Fasteignamat
3.130.000 kr.
Mynd af Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Löggiltur fasteignasali
Fasteignanúmer
2345630
Húsgerð
Jörð/Lóð
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Illagil 15 og 13, 805 Selfoss
Trausti fasteignasala og Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali kynna einstaka perlu á Þingvöllum, lóðirnar Illagil 15 og 13. Um er að ræða tvær samliggjandi lóðir 15 og 13 á einum fallegasta útsýnisstað við suðurenda Þingvallavatns þar sem þjógarðurinn, Skjaldbreið, Ármannsfell og Hrafnabjörg blasa við. Aðkoma að svæðinu er í gegnum lokað bómuhlið og lóðunum fylgir aðgangur að Hestvík og réttur til bátahalds. 
Teikning, verkfræðihönnun, og byggingarréttur að stóru og glæsilegu húsi fylgir lóðunum, en gert er ráð fyrir að það sé reist á lóð 15 og er búið að grafa grunn á lóðinni til að koma því fyrir. Húsið er hannað af Arkiteó arkitektum og hefur hönnun þess miðað að því að hámarka útsýni frá því, þægindi og aðgengi um leið og það fellur að landinu á einstaklega smekklegan hátt. Hér eru á ferðinni einar síðustu útsýnislóðirnar við Þingvallavatn, í einungis 30 mínútna fjarlægð frá höfuðborginni. Lóðirnar seljast einungis allar saman. Allar nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða á netfanginu hallgrimur@trausti.is.


Vefsíða með frekari upplýsingum er að finna hér

Nánari lýsing eignar:
Frá Reykjavík er ekið um Nesjavallaleið til austurs og þegar komið er inná Grafningsveg er ekið að afleggjara inn að Illagili þar sem lokað bómuhlið er inná svæðið.
Hliðið er opnað með fjarstýringu eða talnakóða.
Lóðirnar eru ofarlega í landinu og er kominn vegur að báðum ásamt neysluvatni og rafmagni að lóðarmörkum. 
Búið er að grafa fyrir grunni á lóð númer 15, leggja veg að grunninum og leiða vatn og rafmagn.
Illagil 13 er 7900 fm, Illagil 15 er 6100 fm samkvæmt lóðarblaði. 

Hér er tækifæri fyrir fjársterka aðila að eignast einstakar lóðir við Þingvallavatn þar sem hægt er að reisa heillsárshús með öllum nútíma þægindum. Afar sjaldgæft er að lóðir komi í sölu á þessu svæði. Áhugasamir vinsamlega hafið samband við Hallgrím Hólmsteinsson í síma 896-6020 eða á netfanginu hallgrimur@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits: 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (9)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mosagata 15
Bílastæði
Opið hús:17. mars kl 12:15-12:45
Skoða eignina Mosagata 15
Mosagata 15
210 Garðabær
93.5 m2
Fjölbýlishús
32
887 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Mávahlíð 41
Opið hús:17. mars kl 18:00-18:30
Skoða eignina Mávahlíð 41
Mávahlíð 41
105 Reykjavík
95.5 m2
Fjölbýlishús
312
836 þ.kr./m2
79.800.000 kr.
Skoða eignina Klausturhólar C gata 17
3D Sýn
Klausturhólar C gata 17
805 Selfoss
91 m2
Sumarhús
513
603 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Skoða eignina Geislaskarð 2
3D Sýn
Skoða eignina Geislaskarð 2
Geislaskarð 2
221 Hafnarfjörður
108 m2
Fjölbýlishús
413
727 þ.kr./m2
78.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin