ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina Hlíðarvegur 38, birt stærð 145.0 fm. Fjögurra svefnherbergja raðhús í hjarta Njarðvíkur. Íbúðarhlutinn er 123 fm og bílskúrinn 22 fm samtals 145 fmEignin skiptist i forstofu, þvottahús með geymslu innaf, geymsla í holi/möguleiki gesta salerni, stofa, eldhús, fjögur svefnherbergi, fatageymsla, baðherbergi, bílskúr með gryfju ásamt geymslu innangeng að utan frá bakverönd.
**** - Nýlegt Quickstep harðparket.
**** - Innvols í rafmagnstöflu endurnýjað 2022.
**** - Nýlegir rofar og tenglar 2021.
**** - Þakjarn, flasningar og þakpappi voru endurnýjuð árið 2021.
**** - Hurðar bakvið endurnýjaðar (inn í skúr og geymslu) 2024.
**** - Bílskúrshurð og opnari endurnýjað 2024.
**** - Nýleg heimilistæki í eldhúsi.
**** - Loftaklæðning og veggir aðalrými/stofa 2024.
**** - Hluti af ofnum hefur verið endurnýjað ásamt lögnum.
**** - Þrýstikútur í hitagrind 2021.
Forstofa er parket á gólfi, fatahengi og millihurð.
Þvottahús er innaf forstofu, málað gólf. Inn af þvottahúsi er geymsla ásamt rafmagnstöflu.
Eldhús er lakkaðri innréttingu, parket á gólfi, nýleg tæki.
Stofa er með parketi á gólfi og útgengt út á baklóð. Bjart og stórt rými.
Fjögur herbergi eru í húsinu tvö eru með skápum og parket er á gólfum.
Baðherbergi er með baðkari, svartri innréttingu við vask og flísum á gólfi og veggjum.
Bílskur með gryfju og útgengni út á baklóð, frá baklóð er innangengt í geymslu sem er í enda bílskúrs.
Hellulögð innkeyrsla er að framanverðu. Baklóð hellulögð að hluta, sjólveggur og stór tyrfð lóð.
Endurnýjað var skolp og frárennslislögn á baði, þvottahúsi og eldhúsi. Ekki var endurnýjað inná gestabað.
Miðstöðvalagnir eru í eir og lokað veitukerfi.
Fjölskyldu hús með fjórum svefnherbergjum, stutt í grunn og leikskóla- stutt í Reykjaneshöll.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.