Fasteignaleitin
Opið hús:04. okt. kl 16:00-16:30
Skráð 2. okt. 2026

Breiðavík 51

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
152.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
129.500.000 kr.
Fermetraverð
850.854 kr./m2
Brunabótamat
92.900.000 kr.
Byggt 1997
Pallur
Heitur pottur
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
22299991
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Aldir Fasteignir og Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 kynna í einkasölu:
Um er að ræða vel skipulagt fjögurra herbergja 152.2 fm raðhús á einni hæð á þessu vinsæla hverfi í Víkurhverfinu í Grafarvogi.
Eignin er töluvert mikið endurnýjuð, skjólgóður sólpallur til suðurs með heitum potti (hitaveituskel), geymsluskúr í garði, gott bílaplan framan við húseign.
Stutt er í skóla, leikskóla, íþróttar og útivistarsvæði, alla þjónustu og stofnbrautir.
Fjölskylduvæn eign á frábærum stað í Grafarvogi.


Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Íbúð er 117 fm merkt 02-01-01 og bílskúr er 35.2 fm merkt 02-01-02, samtals 152.2 fm. 
Geymsluskúr er í garðinum.

Nánari upplýsingar um eign:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@aldirfasteignir.is
Guðrún Diljá lögg.fasteignasali s. 895-5181 eða gudrun@aldirfasteignir.is

Eignin skiptist í:
Forstofu, hol/alrými, stofu/borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi, geymslu og innbyggðan bílskúr.
Verönd með heitum potti.

Nánari lýsing á eign:
Framan við inngang í hús er verönd til norð-austurs.
Komið er inn í forstofu og úr forstofu er inngengt í bílskúr og er geymlsa á milli palli áður en gengið er niður í bílskúr sem að er nýtt sem skrifstofuherbergi.
Hol/alrými þaðan sem að gengið er í önnur rými eignar og er það nýtt sem sjónvarpsstofa.
Stofa/borðstofa er opið og bjart rými sem að rennur saman, góð lofthæð í stofunni og er útgengt úr stofu út í garð til suðurs það sem að er verönd með heitum potti (hitaveituskel) og geymsluskúr í garði.
Eldhús er rúmgott og opið að hluta inn í alrými er með nýlegri snyrtilegri eldhúsinnréttingu með efri og neðri skápum, vönduð eldhústæki, gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu og þá er innbyggður ísskápur í innréttingu, fallegt útsýni er til norð-austurs úr eldhúsi.
Þrjú góð svefnherbergi og eru fataskápar í öllum herbergjum, rafdrifin þakgluggi í hjónaherbergi.
Baðherbergi er með flísum á gólfum og veggjum, baðkar og hlaðin sturtuklefi, góð innrétting undir vask og veggskápar með miklu geymsluplássi, rafdrifinn þakgluggi á baðherbergi.
Þvottaherbergi er rúmgott með rúmgóðri innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara, skolvaskur í borðplötu.
Bílskúr er mjög rúmgóður og innst í bílskúr (undir geymslu/skrifstofu) er búið að útbúa geymslurými.
Gólfefni: Harðparket, flísar og korkflísar á gólfum eignar.

-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@aldirfasteignir.is


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (37)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugavegur 96
Efsta hæð
Hleðslustöð
Skoða eignina Laugavegur 96
Laugavegur 96
101 Reykjavík
145.9 m2
Fjölbýlishús
312
685 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Grandahvarf 1.B
Efsta hæð
Hleðslustöð
Skoða eignina Grandahvarf 1.B
Grandahvarf 1.B
203 Kópavogur
164.2 m2
Fjölbýlishús
412
847 þ.kr./m2
139.000.000 kr.
Skoða eignina Núpahraun 6, Afhendist fullbúið
Bílskúr
Á einni hæð
Núpahraun 6, Afhendist fullbúið
815 Þorlákshöfn
139 m2
Raðhús
413
575 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Núpahraun 6, Afhendist fullbúið
Hleðslustöð
Núpahraun 6, Afhendist fullbúið
815 Þorlákshöfn
139 m2
Raðhús
413
575 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin