Fasteignaleitin
Skráð 27. mars 2024
Deila eign
Deila

Grensásvegur 1B íb205

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
81.1 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
73.900.000 kr.
Fermetraverð
911.221 kr./m2
Fasteignamat
5.820.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Sigurður Gunnlaugsson
Sigurður Gunnlaugsson
Fasteignasali
Lyfta
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2519705
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
5
Inngangur
Sameiginlegur
Byggingarstig
1 - Byggingarleyfi
Matsstig
1 - Samþykkt
Fasteignasalan TORG kynnir:  ÞESSI ÍBÚÐ ER ÆTLUÐ ELDRI BORGURUM! Glæsileg 3ja herbergja íbúð á 2.hæð á Grensásvegi 1B, íbúð nr. 0205, sem skilast fullbúin með gólfefni, á þessum eftirsóttastað í útjaðri Skeifunnar að Laugardalnum, sem er eitt fallegasta útivistarsvæði borgarinnar. Íbúðin er í göngufæri  við alla almenna þjónustu s.s í Glæsibæ og Skeifunni sjá nánar á heimasíðu: Söluvefur G1. Allar nánari upplýsingar veitir Darri fasteignasali í GSM: 767-0000, eða darri@fstorg.is   Íbúðin er skráð skv. Þjóðskrá 81,1fm í góðu lyftuhúsi. Íbúðin skiptist í alrými með eldhúsi, borðstofu, stofu og útgengi á svalir, 2 svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, og sérgeymslu í sameign, skráð 6,1fm.  Gófhiti er í öllum rýmum og handklæðaofn í baði. Fallegar samrýmdar og sérsmíðaðar innréttingar frá IWA, vönduð rafmagnstæki frá Bsoch, meðal annars innfeldur ísskápur, innbyggð uppþvottavél, Spanhelluborð, ofn og Eico vifta yfir eyju og/eða Bosch vifta undir skáp, þar sem við á. Baðherbergi og ef um sér þvottaherbergi er að ræða, eru flísalögð með flísum frá Casalgrande Padana. Hreinlætistæki eru frá Grohe og sturtuklefi með hertu sturtugleri og niðurfalli í gólfi. Allar nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir Lögg. fasteignasali í GSM: 690 4966, eða matthildur@fstorg.is 

Nánari lýsing: Alls eru áætlaðar allt að 204 íbúðir í þessu verkefni, sjá nánar á heimasíðu: Söluvefur G1.  Allar íbúðirnar eru innréttaðar á sama hátt. Íbúðum er skilað með eldhús-, bað- og þvottahúsinnréttingum (þvottahús er ekki í öllum íbúðum), ásamt fataskápum í forstofu og svefnherbergjum/fataherbergjum. Allar innréttingar eru í dökkum eikarlit í bland við hvítan akrýl sem er eitt það slitsterkasta efni sem völ er á í dag. Gólfhiti er í öllum rýmum íbúða. Ofnar eru í sameign og á geymslusvæðum fyrir utan sjálfan bílakjallarann. Innan íbúða verður stærsti hluti innveggja, þ.e. þeir sem ekki eru staðsteyptir, úr LEMGA léttsteypusteinum. Einungis lítill hluti veggja í húsinu verða gifsveggir. Sorpflokkun/sorplosun í húsinu er öll í sameiginlegri sorpgeymslu í kjallara innanhúss. Sorp verður losað um lúgur eftir tegund sorps. Engin sorpgeymsla eða flokkun er utandyra. Almennt gildir að íbúðum verður skilað máluðum í ljósum litum og án gólfefna fyrir utan flísalögn á bað- og þvottaherbergjum. Veggir á baðherbergjum verða flísalagðir fyrir utan vegginn þar sem gengið er inn í baðherbergi. Handklæðaofn er í öllum baðherbergjum. 
Gert er ráð fyrir allt að um 4.000 m2 af atvinnuhúsnæði, þ.e. skrifstofu-, veitinga og verslunarhúsnæði, sem að mestu leyti er í sérinngangi í sjö hæða norðurenda 1A-húss, en einnig er atvinnuhúsnæði á jarðhæð meðfram Grensásvegi og á allri jarðhæð 1C-húss sem staðsett er á suðurenda lóðar. Heildarfjöldi bílastæða er rúmlega 180 stæði í kjallara á þremur hæðum. Einnig er m.a. að finna sameiginlega hjólageymslu í kjallara fyrir um 400 hjól. Fjöleignarhúsin skiptast í fjögur sjálfstæð hús ofanjarðar með sjö stigagöngum, sameiginlegum kjallara, bílastæðum og geymslum. Geymslur fylgja öllum íbúðum og eru þær staðsettar á fyrstu og annarri hæð kjallara og eru flestar þeirra í svokölluðum geymslugangi sem er aðgengilegur frá bílakjallara en nokkrar þeirra snúa beint út í bílakjallara. Íbúar hafa aðgengi að einu eða fleiri bílastæðum í bílakjallara gegn gjaldi. Hægt verður að velja um fleiri en eina áskriftarleið eftir viðveru. Einnig verður möguleiki á skammtímaleigu á stæðum yfir hluta úr degi í gegnum stæðakerfið sem byggir á myndavélakerfi við inn- og útkeyrslu í bílakjallara frá Skeifunni. Húsin verða fjögurra til sjö hæða, sjö hæðir á lóðinni til norðurs á móti Glæsibæ, fimm hæðir á miðri lóð og fjórar hæðir í suðurenda lóðar að Skeifunni. Á milli húsanna er skipulagður sameiginlegur garður fyrir íbúa og snúa verandir stigaganga 1A, 1B, 1D, 1E og 1F að þeim garði. Inngangar inn í sum húsin liggja einnig í gegnum garðinn.  Göngustígar inni í garðinum verða steyptir/hellulagðir/malbikaðir að mestu leyti með snjóbræðslukerfi. Aðgengi inn í garðinn verður eingöngu fyrir gangandi og hjólandi fólk. Garðurinn verður opinn. Sólin skín frá suðri beint inn í inngarðinn á milli húsanna enda markmiðið að skapa skemmtilegan sælureit og leikaðstöðu. Gróður verður í garðinum og upp við íbúðir á jarðhæð sem snúa inn í garðinn. Sérafnotaréttur íbúða á jarðhæð er málsettur og afmarkaður með eins meters háum timburskjólveggjum. Frágangur á útjaðri lóðar verður vandaður og mun tengjast gangstéttum í kringum lóðina til að gera flæði fólks ofanjarðar og upp úr kjallara sem hentugast. Í allri hönnun er tekið tillit til fólks í hjólastólum eins og kröfur segja til um og í því samhengi verða t.d. átta lyftur í þeim fjórum húsum sem verða byggð á lóðarhluta I. Einnig verða fimm hjólastólastæði í bílakjallara með aðgengi upp á hæðir ofanjarðar. Nánari upplýsingar má finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins Söluvefur G1.    Allar nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir Lögg. fasteignasali í GSM: 690 4966, eða matthildur@fstorg.is 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grensásvegur 1B íb502
Grensásvegur 1B íb502
108 Reykjavík
75.5 m2
Fjölbýlishús
211
979 þ.kr./m2
73.900.000 kr.
Skoða eignina Grensásvegur 1B íb506
Grensásvegur 1B íb506
108 Reykjavík
67.7 m2
Fjölbýlishús
211
1062 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Skoða eignina Grensásvegur 1B ib508
Grensásvegur 1B ib508
108 Reykjavík
77.3 m2
Fjölbýlishús
211
995 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Skoða eignina Grensásvegur 1B íb509
Grensásvegur 1B íb509
108 Reykjavík
76.1 m2
Fjölbýlishús
211
997 þ.kr./m2
75.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache