Seld með fyrirvara um fjármögnun.
Glæsileg nýstandsett þriggja herbergja útsýnis íbúð á efstu hæð í lyftuhúsi með einstaklega fallegu útsýni yfir Hafnarfjörð og víðar. Grill svalir. Íbúðin er laus strax.
Næg bílastæði, rafhleðslustöð á lóð.Skoðaðu 3 d myndir af eigninni hér Lýsing:
Inngangur er flísalagður og snyrtilegur og er lyfta í húsinu. Forstofa með lokuðu fatahengi. Flísar á forstofu, eldhúsi og stofu. Stofan og eldhúsið er í einu björtu rými og er mikið og fallegt útsýni úr stofu, öðru svefnherberginu og af svölum.
Glæsileg ný eldhúsinnrétting frá Fríform, spanhelluborð, innbyggður ísskápur og fl.. Baðherbergið er flísalagt með baðkari og er gert ráð fyrir þvottavél inn á baði, ný innrétting er á baði. Hvítar innihurðir. Ljóst harðparket á svefnherbergium, nýr fataskápur í hjónaherbergi frá Fríforn. Rúmgóð geymsla með hillum auk hefðbundinnar sameignar.
Allar nánari upplýsingar veitir Ásmundur Skeggjason, löggiltur fasteignasali í síma 895 3000 og as@hofdi.is.is