Helgafell fasteignasala kynnir til sölu bjarta og rúmgóða fjögurra herbergja íbúð á annarri hæð við Breiðvang 11 í Hafnarfirði, merkt 201. Þrjú svefnherbergi (voru áður fjögur), rúmgóðar stofur, eldhús, baðherbergi, þvottahús innan íbúðar og svalir.Helstu kostir eignarinnar:- Þrjú svefnherbergi.
- Björt og rúmgóð stofa og borðstofa.
- Nýlega uppfært eldhús með góðu skápaplássi og borðkrók.
- Nýlega uppfært baðherbergi með "walk-in" sturtu og glugga.
- Sérþvottahús innan íbúðar.
- Stór fataskápur í hjónaherbergi.
- Djúpar skjólgóðar suður-svalir.
Nánari lýsing:Forstofa og gangur: Komið er inn í flísalagða forstofu með fataskáp. Þaðan tekur við gangur sem tengir saman rými íbúðarinnar.
Stofa og borðstofa: Björt og rúmgóð samliggjandi rými með stórum gluggum, harðparket á gólfi. Gott rými er fyrir setustofu, stórt borðstofuborð og aukinn setukrók eða vinnuaðstöðu eftir þörfum. Áður var svefnherbergi þar sem borðstofan er.
Eldhús: Með hvítri nýlegri innréttingu, viðarlitum borðplötum og góðu vinnu- og skápaplássi. Ofn í vinnuhæð og gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu. Tveir gluggar veita góða birtu og við þá er notalegur borðkrókur. Flísar eru á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með miklu skápaplássi, harðparket á gólfi. Úr herberginu er útgengt út á svalir.
Tvö önnur svefnherbergi: Herbergin eru með ljósu harðparketi. Þau nýtast sem barnaherbergi, gestaherbergi eða vinnuherbergi eftir þörfum.
Baðherbergi: Bjart baðherbergi með glugga, sturtu með glerþili, upphengdu salerni, handlaug í hvítri skúffuinnréttingu, speglaskáp og handklæðaofni. Ljósar flísar eru á veggjum við sturtu.
Þvottahús: Sérþvottahús inn af eldhúsi með glugga góðum skápum, skolvaski og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Svalir: Suður-svalir með aðgengi úr hjónaherbergi og plássi fyrir lítið borð og stóla. Mjög rúmgóðar svalir.
Geymsla: Stór sér geymsla um 10fm. í sameign
Í sameign er hjóla- og vagnageymsla.Á síðustu árum hefur verið ráðist í ýmsar endurbætur á húsinu:Þakjárn, þakrennur og niðurfallsrör hafa verið endurnýjuð, ásamt nær öllum gluggum hússins. Allar hliðar hússins, að framhlið undanskilinni, hafa verið lagfærðar og málaðar eða klæddar. Áætlanir um framkvæmdir á framhlið hafa verið kynntar en ekki verið samþykktar. Þá hafa verið settar upp fjórar nýjar rafhleðslustöðvar og sorpskýli.
Staðsetning:Fjölskylduvæn eign á góðum stað í Norðurbæ Hafnarfjarðar. Göngufæri er í leik- og grunnskóla og stutt í verslanir og aðra þjónustu. Víðistaðatún og Hellisgerði eru í næsta nágrenni og bjóða upp á fjölbreytta útivist.. Þá er stutt í miðbæ Hafnarfjarðar með sínum notalegu kaffihúsum, veitingastöðum og mannlífi.
Fyrir nánari upplýsingar:
Helgafell fasteignasala - sími: 566 0000Rúnar Þór Árnason, lgf., runar@hfs.is