- EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA -
Björt og falleg 2ja herbergja íbúð á jarðhæð í hjarta Kópavogs við Auðbrekku 34.
* Suðurverönd
* Frábær fyrstu kaup
* Mikið endurnýjuð eign
* Mikil uppbygging á sér stað í hverfinuEIGN SEM ER VERT AÐ SKOÐA!
Nánari upplýsingar veita:
Árni B. Kristjánsson B.A í lögfræði / Lgf í síma nr 616-2694 arni@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.is
www.verdmat.is Samkv. Þjóðskrá Íslands er eignin skráð 62.6 m2. Fasteignamat 2025 verður 49.550.000 kr. Eignin skiptist í forstofu, stofu, svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, þvottahús og geymslu.
Nánari lýsing:
Gengið er inn af jarðhæð um sameiginlegan inngang sem þó er eingögnu notaður af öðrum íbúum til að komast í þvottahús.
Hol með parket á gólfi.
Eldhúsið er með nýlegri innréttingu ásamt tækjum. Parket á gólfi.
Baðherbergi er nýlega endurnýjað. Flísalagt í hólf og gólf. Walk in sturta, handklæðaofn og ný innrétting. Gluggi með opnanlegu fagi.
Stofan er mjög björt, harðparket á gólfi. Útgengt á pall og út í garð.
Herbergi er rúmgott og bjart með gluggum á tvo vegu. Plastparket á gólfi. Frístandandi fataskápur.
Sameiginlegt
þvottahús á sömu hæð og íbúð.
Framkvæmdir af núverandi eigendum: Nýjar lagnir fyrir heitt og kalt inn í íbúð, innrétting, klósett, sturta, flísar og handklæðaofn endurnýjað 2020. Klóaklagnir endurnýjaðar að hluta 2020. Allar raflagnir innan íbúðar endurnýjaðar 2020. Húsið: Framkvæmdar voru þakviðgerðir og skipt um rennur árið 2006. Skipt var um klóaklagnir ca 2005. Hús málað og steypuviðgerðir fóru fram árið 2012 einnig voru unnar steypuviðgerðir á suðurhlið hússins árið 2018.
Gæludýrahald: Núverandi íbúi er með gæludýr en leita þarf samþykkis annara íbúa fyrir gæludýri.
Bílastæði: Skv. eiganda er samkomulag um að íbúðin hafi afnot af bílastæði austan megin við húsið en þó er hvergi getið um þau réttindi í eignaskiptayfirlýsingu. Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.