Margrét Rós lgf. og Fasteignasalan TORG kynna í sölu bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja emdaíbúð á 2. hæð með stæði í lokaðri bílageymslu við Berjarima 8 í Grafarvogi. Um er að ræða fallega og rúmgóða eign sem skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, sér þvottaherbergi og rúmgott alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu. Frá stofu er útgengt á svalir með fallegu útsýni. Eigninni fylgir sérgeymsla ásamt stæði í lokaðri bílageymslu. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla og dekkjageymsla eru í húsinu. Snyrtileg og vel hirt sameiginleg lóð og næg bílastæði framan við húsið, en þar er einnig hleðslustaur í eigu húsfélagsins Berjarima 2–8. Nánari upplýsingar veitir Margrét Rós lgf. í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is *** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR *** Birt stærð eignar skv. HMS er 121,0 m², þar af er íbúð ásamt geymslu 86,4 m² og stæði í bílageymslu 34,6 m². Íbúðin sjálf er 79,6 m² og sérgeymsla 6,8 m²Nánari lýsing eignarForstofa: Komið er inn í opið anddyri með góðu skápaplássi. Harðparket er á gólfi.
Alrými: Eldhús, stofa og borðstofa eru samliggjandi í björtu alrými með einum vegg sem skilur að eldhús frá stofu. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Snyrtilegt með hvítri innréttingu, góðu skápaplássi og dökkri borðplötu. Eldhúsið tengist borðstofu og stofu á skemmtilegan hátt.
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð með stórum gluggum á tvo vegu. Frá stofu er útgengt á svalir með fallegu útsýni yfir nærliggjandi byggð og til fjalla.
Hjónaherbergi: Rúmgott með harðparketi á gólfi og góðum fataskápum eftir heilum vegg. Stór gluggi gefur góða birtu inn í rýmið.
Svefnherbergi: Annað gott svefnherbergi með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi: Baðherbergi er flísalagt með baðkari með sturtuaðstöðu, innréttingu með handlaug og salerni.
Þvottaherbergi: Er innan íbúðar með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Eigninni fylgir 6,8 m² sérgeymsla í kjallara.
Bílageymsla: Eigninni fylgir (34,6 m²) stæði í lokaðri bílageymslu og búið er að leggja rafmagn að stæði fyrir rafhleðslu. Þvottaaðstaða er í bílageymslunni.
ERTU Í SÖLUHUGLEIÐINGUM? SMELLTU HÉR FYRIR FRÍTT VERÐMATSameign og lóðHjóla- og vagnageymsla: Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í húsinu og þaðan er útgengt í bakgarð.
Dekkjageymsla: Sameiginleg dekkjageymsla er í húsinu.
Sorpgeymsla: Sorpgeymsla er í lokuðu rými við anddyri hússins.
Lóð: Snyrtileg og vel hirt sameiginleg lóð. Gott bílastæði er framan við húsið og þar er hleðslustaur í eigu húsfélagsins Berjarima 2–8.
HúsiðBerjarimi 8 er steinsteypt fjölbýlishús, en íbúðarhluti eignarinnar er byggður árið 1993 og bílageymslan árið 1992. Húsin við Berjarima 2, 4, 6 og 8 hluti af sömu húsasamstæðu og sameiginleg bílageymsla er fyrir húsin. Þrjú húsfélög eru vegna eignarinnar, eitt fyrir stigaganginn að Berjarima 8, annað vegna húsfélag Berjarima 2–8 og þriðja vegna bílageymslu.
** HVERS VIRÐI ER ÞÍN EIGN? SMELLTU HÉR **Endurbætur og framkvæmdir að sögn seljanda:2016: Skipt um eldhúsglugga.
2020: Baðherbergi íbúðarinnar tekið í gegn.
2020: Borðplata í eldhúsi endurnýjuð og innrétting yfirfarin.
2020: Gólfefni endurnýjuð með harðparketi í alrými og herbergjum.
2021: Handrið og teppi í stigagangi endurnýjuð og stigagangur málaður.
2024: Skipt um alla glugga á framhlið hússins, bæði gluggaramma og gler. Nýjar gluggakistur voru settar í íbúðina þar sem skipt var um glugga.
2025: Múrviðgerðir og málun á framhlið hússins.
StaðsetningEignin er staðsett á góðum og fjölskylduvænum stað í Grafarvogi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir, íþróttaaðstöðu og aðra helstu þjónustu. Góðar göngu- og hjólaleiðir og fjölbreytt útivistarsvæði eru í næsta nágrenni og stutt er í verslun og þjónustu í Spönginni.
Virkilega björt og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð með tveimur góðum svefnherbergjum, rúmgóðu alrými, svölum með opnu útsýni, sérgeymslu og stæði í lokaðri bílageymslu á góðum stað í Grafarvogi.Nánari upplýsingar veita:Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali / s.
856-5858 /
margret@fstorg.isAðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali / s.
773-3532 /
adalsteinn@fstorg.isKÍKTU Í HEIMSÓKN TIL MÍN Á FACEBOOK
VILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉRUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.