Fasteignasalan TORG kynnir:
SÉRHÆÐ LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING. Holtagerði 46 efri sérhæð með sérinngangi og bílskúr. Einstaklega fallegt útsýni og frábær staðsetning í vesturbæ Kópavogs. Eignin er vel skipulögð og nýtast fermetrar eignarinnar vel. Ekkert formlegt húsfélag er starfrækt.Birt stærð 152,6 fm og þar af bílskúr 22,8 fm. 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi, geymsla/búr innan íbúðar. Stórar suðursvalir. Íbúðin er björt með glugga á fjóra vegu. Frábært útsýni yfir Fossvoginn - Snæfellsjökull, Esjuna og Skólavörðuholtið.
Hér er um að ræða góða eign á vinsælum stað í vesturbæ Kópavogs. Mjög stutt í alla almenna þjónustu, skóla og leikskóla. Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð að innan seinustu ár, öll gólfefni, bæði baðherbergin hafa verið endurnýjuð og hefur verið dregið nýtt rafmagn og ný rafmagnstafla. Árið 2021 var skipt um þak í heild sinni. Nánari upplýsingar veitir Hafliði Halldórsson Löggiltur fasteignasali í síma 846-4960 eða á Haflidi@fstorg.isNánari lýsing íbúðareignarinnar: Gengi er upp steyptan stiga að útidyrarhurð íbúðar.
Forstofan er rúmgóð með fatahengi og skápum.
Stofan/borðstofan er björt og falleg og er opin inn í eldhús. Útgengt er út á suðursvalir úr stofu.
Eldhúsið er með svartri innréttingu með góðu skápaplássi, efri og neðri skápar. Tengi fyrir uppþvottavél. Nýlega hefur verið skipt um borðplötu, vask og blöndunartæki. Harðparket á gólfinu.
Svefnherbergin eru þrjú. Úr hjónaherbergi er gengið út á suðursvalir. Öll svefnherbergin eru rúmgóð.
Baðherbergi. Stærra baðherbergið var endurnýjað 2022, voru þá allar lagnir endurnýjaðar, hiti lagður í gólf, sérsmíðaðar innréttingar fyrir þvottavél og þurrkara og með góðu vinnusvæði og er hægt er að loka þvottasvæði alveg af. Mjög gott skápapláss er inn á baðherbergi. Góð sturta með innbyggðum blöndunartækjum. Upphengt salerni, Flísar á veggjum og gólfi.
Gestasnyrting. var endurnýjuð 2015, flísalögð með upphengdu salerni og hvítru innréttingu.
Geymsla/búr er innan íbúðar við hlið eldhús með hvítri rennihurð.
Nánari lýsing bílskúrs: Bílskúrinn: er með hita og rafmagni og er í dag tvískiptur en búið hefur verið til herbergi úr fremri hluta bílskúrs með dúkalögðu gólfi sem notað hefur verið sem skrifstofa. Eignin hefur sérafnotarétt af bílastæði hægra megin í innkeyrslu fyrir framan bílskúrshurð.
Lóð: Sameiginleg lóð fyrir framan og aftan hús. Lóð fyrir aftan hús er hellulögð fyrir framan hús er fallegur garður.
Nánari upplýsingar veitir Hafliði Halldórsson Löggiltur fasteignasali í síma 846-4960 eða á Haflidi@fstorg.isSkoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sanneynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.