Domusnova fasteignasala og Sverrir Sigurjónsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna:
Í einkasölu:Falleg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á þriðju hæð í nýlegu fjölbýli fyrir 55 ára og eldri. Íbúðin er alls 94,2m2 að stærð og er geymsla í kjallara 10m2 þar af. Húsið er staðsteypt og klætt með báruáli og flísum.
Íbúðin skiptist í forstofu, baðherbergi með þvottaaðstöðu, svefnherbergi, gesta/auka herbergi, stofu og eldhús. Harðparket er á öllum gólfum, nema flísar á baðherbergi.
Í
forstofu er góður skápur og einnig í svefnherbergjum.
Eldhús og
stofa eru saman í opnu rými, eldhúsinnrétting er grátónuð með dökkri borðplötu og vönduðum tækjum, útgengi er úr stofu á suðursvalir sem er með glersvalalokun.
Svefnherbergin tvö eru bæði með fataskápum
Baðherbergi er flísalagt, þar er góð innrétting og gólfsturta. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð er á baðherbergi, auk skolvasks.
Íbúðinni fylgir
stæði í bílakjallara með hleðslustöð. Möguleiki er á að kaupa auka bílastæði í kjallaranum með íbúðinni.
í bílakjallarnum er sameiginleg þvottaaðstaða fyrir bíla. Einnig er þar rými með sameiginlegum líkamsræktartækjum. Rúmgóð geymsla í séreign er í kjallara, auk þess eru sameiginleg hjólageymsla.
Nánari upplýsingar veitir:Sverrir Sigurjónsson löggiltur fasteignasali / s.662 4422 / sverrir@domusnova.is
Allir sem kaupa fasteign hjá Domusnova fá
Gullkort Domusnova, sem veitir m.a. afslætti hjá Birgisson, Lín Design, Ísorku, Módern, Nespresso, Öryggismiðstöðinni, Granítsmiðjunni, Sérefni, Sólar gluggatjöldum, Tengi, Smith&Norland og Lúxus málningu
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.