Glæsilegt og vandað einbýlishús, teiknað af Kjartani Sveinssyni, á fjölskylduvænum og afar eftirsóttum stað í Árbænum. Stutt í alla helstu þjónustu og nálægð við útivistarsvæði Elliðaárdalsins.
** 5 svefnherbergi
** 2 skjólgóðar viðarverandir
** Heitur pottur
** Tvöfaldur bílskúr
Nánari upplýsingar veita:Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr
660-1976 eða hrafnkell@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í S:
775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stært skv. HMS er 412,9m2 þar af bílskúr 54,6m2.
Eignin skiptist í anddyri, borðstofu, stofu, arinstofu, eldhús, búr, 2 baðherbergi, 5 svefnherbergi, sólskála, gang, þvottahús, geymslu og tvöfaldan bílskúr.
Nánari lýsing:
Efri hæð - Aðalinngangur:
Anddyri er með fataskáp. Flísar á gólfi.
Borðstofa er rúmgóð og björt. Parket á gólfi.
Arinstofa er með útgengi út í garð. Flísar á gólfi.
Stofa er rúmgóð og björt með fallegu útsýni. Parket á gólfi.
Eldhús er hvítri og viðarinnréttingu með góðu skápaplássi, bakaraofni, helluborði, viftu, tengi fyrir uppþvottavél, stæði fyrir amerískan ísskáp og borðkrók. Parket á gólfi.
Búr er inn af eldhúsi. Hægt væri að breyta í þvottahús þar sem lagnir eru til staðar. Parket á gólfi.
Herbergi I er rúmgott með útgengi út á svalir. Parket á gólfi,
Herbergi II er með góðu skápaplássi. Parket á gólfi.
Baðherbergi I er með hvítri innrétting, handlaug, salerni, handklæðaofni , rúmgóðum sturtuklefa með innfelldum tækjum og gluggum. Flísar á gólfi,
Sólskáli er með útgengi út á skjólgóða timburverönd. Flísar á gólfi.
Bílskúr er tvöfaldur bílskúr með flísar á gólfi, báðar hurðar með rafmagnshurðaopnara, rafmagn, heitt og kalt vatn, glugga og inngönguhurð.
Garður efri hæð er fallegur og vel við haldinn.
Neðri hæð:
Herbergi III er mjög rúmgott. Parket á gólfi.
Herbergi IV er með parket á gólfi.
Herbergi V er mjög rúmgott. Parket á gólfi.
Sjónvarpsherbergi er með parket á gólfi.
Geymslurými er innaf sjónvarpsherbergi.
Baðherbergi II er með innréttingu undir handlaug, baðkar og salerni. Flísar á gólfi.
Gangur er með góðu skápaplássi. Parket á gólfi.
Herbergi/sturta, sturtuklefi ásamt rými sem gæti nýst vel fyrir gufubað/saunu. Flísar á gólfi.
Þvottahús er með góðu skápaplássi, stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, þvottasnúrur, skolvaski og glugga. Flísar á gólfi,
Geymsla er rúmgóð. Flísar á gólfi.
Garður neðri hæð er skjólgóður og fallega hannaður með hellu- og timburlagðri verönd ásamt heitum potti og fallegum gróðri.
Ath. Innra skipulagi eignarinnar hefur verið breytt frá upprunalegum teikningum.
Bleikjukvísl 24 er afar fallegt og vel viðhaldið einbýlishús með skjólgóðum og grónum görðum. Eignin býður upp á ýmsa nýtingarmöguleika og væri mögulegt að skipta eigninni upp í fleiri einingar. Fjölskylduvæn og vinsæl staðsetning í nálægð við alla helstu þjónustu.
Sjón er sögu ríkari.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.