Helgafell fasteignasala og Ragnheiður Árnadóttir, löggiltur fasteignasali kynna, vel skipulagt 4-5 herbergja einbýlishús með útigeymslu og bílskýli. Húsið er samkvæmt fasteignayfirliti 128,2 fm, þar af er íbúðarhluti 117.4 fm. og geymsla/þvottahús 10,8 fm. Umhverfis húsið er stór gróinn garður með stórum suður sólpall og heitum potti. Um er að ræða vel staðsett hús í rólegum stað í botnlanga með leikvelli vestan við húsið.
Skipulag eignar:
Forstofa, stofu/borðstofa, eldhús, 3 svefnherbergi, fataherbergi, baðherbergi, þvottahús/geymsla og bílskýli.
Lýsing eignar:
Forstofa: Komið er inn í parketlagða forstofu með fatahengi.
Borðstofa/Stofa: Björt og rúmgóð praketlögð stofa. Úr stofu er útgengt út á suður sólpall með heitum potti, ný svalahurð og einnig er útgengt út í garð á vestur hlið hússins.
Eldhús: Inn af stofu er parketlagt eldhús með góðri innréttingu og borðkrók, eldhústæki nýleg. Uppþvottavél fylgir með.
Hjónaherbergi: Stórt parketlagt hjónaherbergi með góðum fataskápum, búið er að loka dyraopi og opna inn af hjónaherbergi og útbúa fataherbergi. Einfalt er að breyta til baka í svefnherbergi.
Svefnherbergi 2: Rúmgott parketlagt herbergi.
Svefnherbergi 3: Inn af forstofu parketlagt herbergi. Nýir gluggar eru í þessu herbergi.
Baðherbergi: Endurnýjað '24, flísar á gólfi, fibo plötur á veggjum, walk in sturta, upphengt salerni, innrétting með speglaskáp.
Geymsla / þvottahús: Við hlið hússins er 10.8 fm. útigeymsla sem búið er að breyta í þvottahús, tengi fyrir þvottavél, skolvaskur, málað gólf.
Bílskýli: Yfirbyggt bílskýli, búið er að setja upp heimahleðslustöð.
Lóð: Fallegur gróinn garður með stórum og rúmgóðum sólpall á suðurhlið hússins með heitum potti og vestan við húsið er hellulögð verönd með fallegri steinhleðslu, möl í innkeyrslu.
Að sögn eigenda hefur verið:
Baðherbergi endurnýjað '24.
Skápar á gangi endurnýjaðir '24.
Innihurðar endurnýjaðar '24.
Eldhúsinnrétting, notuð en sett upp ásamt eldhúsgólfi og borðplötu '26.
Þak á íbúðarhluta hússins, nýtt þak, þakkantur, þakskegg, sperrur og þakrennur í okt '23.
Nýir gluggar í forstofuherbergi og önnur svalahurðin.
Girðing sett upp að mestu leiti, efni til til að klára '26.
Nánir upplýsingar og sýning á eigninni veitir Ragnheiður Árnadóttir, löggiltur fasteignasali. 697-6288 eða ragnheidur@helgafellfasteignasala.is