Fasteignaleitin
Skráð 14. okt. 2026

Barðastaðir 7

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
132.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
92.900.000 kr.
Fermetraverð
701.132 kr./m2
Brunabótamat
71.660.000 kr.
Byggt 2000
5. hæð
Svalir
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
22448773
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Aldir Fasteignir og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111/ andri@aldirfasteignir.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:

Um er að ræða fallega og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 5. hæð ásamt bílskúr í snyrtilegu lyftuhúsi við Barðastaði 7 í Grafarvoginum. Eignin er skráð skv skráningu HMS: 132,5 fm, þar af er íbúðin sjálf 101,7 fm, sérgeymsla 7 fm og 23,8 fm bílskúr. Glæsilegt útsýni - þvottahús innan íbúðar - íbúðin er laus við undirritun kaupsamnings - bílskúr með sjálfvirkum hurðaopnara, heitu og köldu vatni ásamt rafmagni og glugga.

Nánari lýsing eignar: Komið er inn í forstofu, fataskápur. Parketlagt sjónvarpshol. Flísalagt baðherbergi í hólf og gólf, sturta, innrétting, upphengt salerni. Tvö svefnherbergi og eru þau bæði með fataskáp. Björt stofa með glæsilegu útsýni. Frá stofu er unnt að ganga út á svalir. Eldhús með mahogny innréttingu, flísar á milli efri og neðri skápa, borðkrókur. Þvottahús innan íbúðar með hillum og skolvask. Gólfefni íbúðar: parket og flísar á gólfum. Eigninni fylgi sérgeymsla ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. 

Húsið er steinað að utan og viðhaldslétt. Árið 2021 var húsið múrviðgert og málað að utan. Árið 2022 var lyftan endurnýjuð nema sjálft lyftuboxið. Sameignin og lóðin eru snyrtileg. Fjöldi bílastæða og hleðslustöðvar fyrir rafbíla.

Eignin er afar vel staðsett.  Stutt í leikskóla og grunnskóla og önnur þjónusta innan seilingar.  Stutt í stofnleiðir og golfvöllurinn Korpa við hliðina. Einstök náttúrupardís umlykjandi og fallegar göngu- og hjólaleiðir meðfram sjónum um og við Geldinganes og víðar. 

Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@aldirfasteignir.is
 

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Þorraholt 19B (304)
Bílastæði
Opið hús:18. okt. kl 13:45-14:15
Þorraholt 19B (304)
210 Garðabær
126 m2
Fjölbýlishús
312
912 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Þorraholt 19B (303)
Bílastæði
Opið hús:18. okt. kl 13:45-14:15
Þorraholt 19B (303)
210 Garðabær
148,3 m2
Fjölbýlishús
323
876 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 9b
Opið hús:22. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Jöfursbás 9b
Jöfursbás 9b
112 Reykjavík
58,5 m2
Fjölbýlishús
211
921 þ.kr./m2
53.900.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 45
Opið hús:19. okt. kl 17:15-17:45
Skoða eignina Hjallabraut 45
Hjallabraut 45
220 Hafnarfjörður
157,5 m2
Raðhús
423
1073 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin