Fasteignaleitin
Skráð 16. des. 2025
Deila eign
Deila

Grensásvegur 1A íb 113

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
80.4 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
80.900.000 kr.
Fermetraverð
1.006.219 kr./m2
Fasteignamat
60.400.000 kr.
Brunabótamat
55.200.000 kr.
Mynd af Katla Hanna Steed
Katla Hanna Steed
Lögg. fasteignasali
Byggt 2025
Þvottahús
Lyfta
Garður
Aðgengi fatl.
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2522153
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
13
Vatnslagnir
Nýlegt
Raflagnir
Nýlegt
Frárennslislagnir
Nýlegt
Gluggar / Gler
Nýlegt
Þak
Nýlegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Timburverönd
Upphitun
Hitaveita/Gólfhiti
Inngangur
Margir inngangar
Matsstig
8 - Í notkun
Háborg fasteignasala og Katla Hanna Steed, löggiltur fasteignasali, kynna glæsilega 2ja herbergja íbúð á 1. hæð við Grensásveg 1A, íbúð 0113. Um er að ræða bjarta og vel skipulagða íbúð með fallegum innréttingum, innfelldri lýsingu í alrými, aukinni lofthæð, gólfsíðum gluggum og gólfhita. Rúmgóð verönd til suðvesturs er sérafnotaréttur íbúðarinnar. Einnig er aðgengi að bílakjallara á þremur hæðum. Öll helstu heimilistæki fylgja með í kaupunum sem og gólfefni.

Nánari upplýsingar veitir Katla Hanna Steed Lögg. fasteignasali, í síma 822 1661 eða katla@haborg.is


Lýsing eignar
Íbúðin skartar opnu og björtu alrými, 38,7 m², þar sem mikil lofthæð og gólfsíðir gluggar skapa afar rúmgóða og sjarmerandi stemningu. Í loftum alrýmis eru innfelld LED-ljós sem fylgja með og bjóða upp á stílhreina og nútímalega lýsingu. Eldhúsið er með dökkri innréttingu og borðplötum í bland við hvítt og innfelldri LED lýsingu undir efri skápum, heimilistæki fylgja eigninni, þar á meðal ísskápur, uppþvottavél, ofn, spanhelluborð og vifta yfir eldhúseyju. Svefnherbergið er 14,3 m² með fataherbergi með góðum skápum. Baðherbergið er með sturtu, dökkum flísum og innréttingu með spegli og LED lýsingu. Þvottahús innan íbúðar með miklu skápaplássi, góðri vinnuaðstöðu og skolvaski. Gólfhiti er í öllum rýmum. Parket á alrými og herbergi og flísar á votrýmum. Innréttingar og hurðir í dökkum lit, blandað við hvítt. Sér verönd er með timburklæðningu og skjólveggjum milli íbúða. Geymsla í kjallara 7,6 m². Aðgengi að bílakjallara á 3.hæðum.  

Húsið G1 er nýbyggt fjölbýlishús sem samanstendur af fimm stigahúsum með samtals 181 íbúð og verslunarhúsnæði á jarðhæð. Í stigagangi G1B eru 41 íbúðir. Aðgangur er að þremur hæðum af bílakjallara sem hægt er að nýta gegn gjaldi.
Virkir dagar kl. 08:00–18:00: kr. 250 á klst.
Virkir dagar kl. 18:00–08:00: kr. 150 á klst.
Helgar: kr. 120 á klst.
Bílastæði eru greidd með appi (t.d. Parka) og eru aðgengileg öllum íbúum.

Deilibílar. Stefnt er að því að deilibílar verði hluti af nýtískulegu og vistvænu umhverfi á Grensásvegi 1. Þeir verða aðgengilegir fyrir íbúa og starfsfólk fyrirtækja á lóðinni. Fyrirkomulag liggur ekki endanlega fyrir, en markmiðið er leigufyrirkomulag þar sem einfalt app verður notað fyrir aðgengi að bílunum og mögulegir notendur líklega forskráðir.

Annað og aðstaða
·         - Húsfélag starfrækt – engar fyrirhugaðar framkvæmdir
·         - Hjóla- og sorpgeymsla með aðgengi að bílageymslu
·         - Bílakjallari með möguleika á leigu og greiðslu í gegnum Parka app

Allar frekari upplýsingar gefur Katla Hanna Steed lgf s:822-1661 og katla@haborg.is

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Orkureitur D2 107
Opið hús:18. des. kl 12:30-13:00
24043_IS_Orku_D_ENTRANCE_DAY.jpg
Orkureitur D2 107
108 Reykjavík
82.8 m2
Fjölbýlishús
312
965 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Orkureitur D2 102
Opið hús:18. des. kl 12:30-13:00
Diddi_vefur.jpg
Orkureitur D2 102
108 Reykjavík
80.3 m2
Fjölbýlishús
312
995 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Orkureitur D2 606
Opið hús:18. des. kl 12:30-13:00
705_cam7_2024_11_25.jpg
Orkureitur D2 606
108 Reykjavík
70.9 m2
Fjölbýlishús
31
1127 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Orkureitur D2 603
Opið hús:18. des. kl 17:30-18:00
22083_IS_Orkureitur_DJI_0007_2025-03-25.jpg
Orkureitur D2 603
108 Reykjavík
67.5 m2
Fjölbýlishús
211
1184 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin