Fasteignasalan Miðborg kynnir fallega og vel um gengna 104,8 fm. útsýnisíbúð á 5. hæð í mjög snyrtilegu lyftuhúsi að Espigerði 4. Eigninni fylgir stæði 03-B29 í bílageymsluhúsi á lóð. Íbúðin skiptist í forstofu, hol/gang, stofu, borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og sérþvottahús innan íbúðar. Sérgeymsla á jarðhæð og þar er einnig sameiginleg reiðhjóla- og barnavagnageymsla. Þá fylgir einnig aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi með tækjum á 2. hæð hússins og samkomusal á 9. hæð.
Nánari lýsing: Komið er á flísalagða forstofu með fataskáp. Parketlagt hol/gangur, samliggjandi við stofurnar, sem eru með útgangi á stórar vestur-svalir sem ná meðfram allri hlið íbúðarinnar. Fallegt útsýni til sjávar til suðurs, vesturs og norðurs. Eldhúsið er opið við borðstofuna, með hvítri innréttingu með beykiköntum, helluborði, ofni og aðstöðu fyrir uppþvottavél. Flísar á milli skápa og gler í hluta efri skápa. Góður borðkrókur. Barnaherbergið er parketlagt og með fataskáp. Hjónaherbergið er parketlagt og með litlu fataherbergi innaf. Baðherbergið er mjög snyrtilegt, flísalagt með walk-in sturtu og innréttingu. Sérþvottahús innan íbúðar er með flísum á gólfi, vinnuborði, hillum og skolvaski.
Snyrtileg upphitið bílageymsla með rúmgóðu sérstæði og sameiginlegri þvottaaðstöðu. Lagnir að hleðslustöðvum fyrir hvert stæði fyrirliggjandi. Einnig eru mjög góð sameiginleg bílastæði austan hússins.
Helstu framkvæmdir á liðnum árum:
2015-2016: Miklar viðhaldsframkvæmdir utanhúss, sprunguviðgerðir, málun o.fl. 2019: Baðerbergi íbúðar endurnýjað að hluta, sett Walk-in sturta o.fl. 2021: Allt tréverk utanhúss málað, rennur við þakkant lagfærðar rafhleðslustöðvum komið upp við bílastæði 2022: Þak málað og stétt fyrir framan hús löguð. 2023: Lagfæringar á sal á 9. hæð auk ýmissa viðhaldsframvkæmda við sameign. 2024: Endurnýjun á öllum skolplögnum undir plötu á jarðhæð og lagðar nýjar regnvatslagnir. 2026: Endurnýjun anddyris, gólfhiti og flísar sett á stigagang á jarðhæð.
Frábær staðsetning mjög miðsvæðis, stutt í alla þjónustu og helstu umferðaræðar. Allar frekari upplýsingar veitir Björn Þorri Viktorsson hrl. og lögg. fasteignasali, í síma 894-7070, tölvupóstur bjorn@midborg.is.
Verið er að ljúka við endurnýjun anddyris, lokið er niðursetningu gólfhita og flísalagnar á sameign á 1. hæð. Lýkur á haustmánuðum. Málun á téverki fyrirhuguð á næsta ári.
Kvöð / kvaðir
Greitt er í hússjóð bílastæðahúss kr. 6.000 á mánuði, til viðbótar við ofangreind húsgjöld til húsfélagsins (innheimt á 3ja mánaða fresti). Inneign í hússjóði íbúðahlutans er kr. 2,8 millj. og í bílastæðahluta 1,1 millj.
Fasteignasalan Miðborg kynnir fallega og vel um gengna 104,8 fm. útsýnisíbúð á 5. hæð í mjög snyrtilegu lyftuhúsi að Espigerði 4. Eigninni fylgir stæði 03-B29 í bílageymsluhúsi á lóð. Íbúðin skiptist í forstofu, hol/gang, stofu, borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og sérþvottahús innan íbúðar. Sérgeymsla á jarðhæð og þar er einnig sameiginleg reiðhjóla- og barnavagnageymsla. Þá fylgir einnig aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi með tækjum á 2. hæð hússins og samkomusal á 9. hæð.
Nánari lýsing: Komið er á flísalagða forstofu með fataskáp. Parketlagt hol/gangur, samliggjandi við stofurnar, sem eru með útgangi á stórar vestur-svalir sem ná meðfram allri hlið íbúðarinnar. Fallegt útsýni til sjávar til suðurs, vesturs og norðurs. Eldhúsið er opið við borðstofuna, með hvítri innréttingu með beykiköntum, helluborði, ofni og aðstöðu fyrir uppþvottavél. Flísar á milli skápa og gler í hluta efri skápa. Góður borðkrókur. Barnaherbergið er parketlagt og með fataskáp. Hjónaherbergið er parketlagt og með litlu fataherbergi innaf. Baðherbergið er mjög snyrtilegt, flísalagt með walk-in sturtu og innréttingu. Sérþvottahús innan íbúðar er með flísum á gólfi, vinnuborði, hillum og skolvaski.
Snyrtileg upphitið bílageymsla með rúmgóðu sérstæði og sameiginlegri þvottaaðstöðu. Lagnir að hleðslustöðvum fyrir hvert stæði fyrirliggjandi. Einnig eru mjög góð sameiginleg bílastæði austan hússins.
Helstu framkvæmdir á liðnum árum:
2015-2016: Miklar viðhaldsframkvæmdir utanhúss, sprunguviðgerðir, málun o.fl. 2019: Baðerbergi íbúðar endurnýjað að hluta, sett Walk-in sturta o.fl. 2021: Allt tréverk utanhúss málað, rennur við þakkant lagfærðar rafhleðslustöðvum komið upp við bílastæði 2022: Þak málað og stétt fyrir framan hús löguð. 2023: Lagfæringar á sal á 9. hæð auk ýmissa viðhaldsframvkæmda við sameign. 2024: Endurnýjun á öllum skolplögnum undir plötu á jarðhæð og lagðar nýjar regnvatslagnir. 2026: Endurnýjun anddyris, gólfhiti og flísar sett á stigagang á jarðhæð.
Frábær staðsetning mjög miðsvæðis, stutt í alla þjónustu og helstu umferðaræðar. Allar frekari upplýsingar veitir Björn Þorri Viktorsson hrl. og lögg. fasteignasali, í síma 894-7070, tölvupóstur bjorn@midborg.is.
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.