Fasteignaleitin
Opið hús:08. okt. kl 17:30-18:00
Skráð 2. okt. 2026

Muruholt 10

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-225
174.8 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
136.900.000 kr.
Fermetraverð
783.181 kr./m2
Fasteignamat
124.600.000 kr.
Brunabótamat
90.950.000 kr.
Mynd af Ragnar Kristján Guðmundsson
Ragnar Kristján Guðmundsson
Fasteignasali
Byggt 2007
Garður
Svalir
Heitur pottur
Bílskúr
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2306767
Landnúmer
201828
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
upprunalegt. Bygg.ár 2007
Raflagnir
upprunalegt. Bygg.ár 2007
Frárennslislagnir
upprunalegt. Bygg.ár 2007
Gluggar / Gler
upprunalegt. Bygg.ár 2007
Þak
upprunalegt. Bygg.ár 2007
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Frá hjónaherbergi
Inngangur
Tveir inngangar
Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali hjá TORG fasteignasölu kynnir:  
Fallegt, vel skipulagt raðhús á tveimur hæðum á fjölskylduvænum stað á Álftanesinu. Húsið er á tveimur hæðum auk bílskúrs og geymsluskúrs (geymsluskúrinn er ekki hluti af skráðri fermetratölu eignarinnar). Aukin lofthæð, innfelld lýsing í stórum hluta eignar og vandaðar innréttingar og tæki.
Eignin er samtals skráð 174,8 fm og þar af er bílskúrinn skráður 30,7 fm. Lóðin er fallega frágengin. Fyrir framan er hellulagt bílaplan með snjóbræðslu og áhalda-/geymsluskúr. Að baka til er gróinn garður með grasi, gróðurkössum, hellulögn með skjólveggjum og tengjum fyrir heitum potti. Gengið er inn í anddyri/forstofu á neðri hæð hússins. Frá anddyri er einnig innangengt í bílskúr og geymslu. Síðan tekur við hol, gestasalerni, rúmgott eldhús með eyju, stofa og borðstofa. Frá stofu er útgengt í garð búinn hellulögn, grasi og skjólveggjum.
Þegar komið er á efri hæðina tekur við mikil lofthæð, þrjú rúmgóð svefnherbergi, rúmgott baðherbergi og þvottaherbergi með aðgengi að geymslulofti.
Rúmgóður bílskúr með rafmagni, heitu- og köldu vatni og innréttingu með skolvaski.
Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 844-6516 eða ragnar@fstorg.is

Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Forstofa/anddyri: Komið er inn í rúmgóða forstofu með góðri lofthæð, innfelldri lýsingu i lofti, flísum á gólfi, fataslá með skóhillu og innréttingu með granít stein (River White) frá S.Helgasyni á borði. Frá forstofu er innangengt bæði í gestasalerni og bílskúr.
Gestasalerni: Innrétting með skápum, granít borðplötu, handlaug, speglaskáp og gráum flísum á gólfi.
Eldhús: Rúmgott eldhús með veglegri 5 metra langri innréttingu og flæðandi granít stein (River White) frá S.Helgasyni á borðum. Innréttingin er búin Siemens tækjum, bakaraofni í vinnuhæð, span helluborði, innbyggðri uppþvottavél og innbyggðum kæliskáp. Góður borðkrókur með barstólaplássi. Flísar á gólfi og opið yfir í stofu með fallegri sérsmíðaðri innréttingu.
Stofa og borðstofa: Rúmgóðar samliggjandi stofur með parketi á gólfi. Stórir gluggar snúa út í garð og birta upp rýmið. Frá stofurýminu er útgengt í garð með skjólveggjum.

Efri hæð: 
Frá holi er gengið upp fallegan teppalagðan stiga með mjúku teppi frá Parka.
Hjónaherbergi: Hjónaherbergið er parketlögð svíta með mikilli lofthæð, innfelldri lýsingu, parketi á gólfi og rúmgóðum fataskápum og hirslum. Útgengt er á stórar svalir.
Svefnherbergi: Að undanskildu hjónaherbergi eru tvö rúmgóð svefnherbergi með mikilli lofthæð, innfelldri lýsingu og parketi á gólfum.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Falleg innrétting með stein á borði og handlaug. Upphengt salerni, veglegt hornbaðkar, walk-in sturta með hertu gleri og innbyggð sturtutæki.
Þvottaherbergi: Innan af holi efri hæðar er flísalagt þvottaherbergi með innréttingu, vinnuborði, vaski, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Uppgengt er á geymsluloft.

Bílskúr: Stór og rúmgóður bílskúr búinn heitu og köldu vatni, innréttingu, skápum og skolvaski.
Búið er að setja upp lagnaleið til að tengja fyrir rafhleðslustöð. Frá bílskúrnum er innangengt í Geymslu.

Falleg og skemmtileg fjölskyldueign á vinsælum og grónum stað á Álftanesi. Göngufæri er í sundlaug, leik- og grunnskóla Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 844-6516 eða ragnar@fstorg.is

Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Gjaldskrá birt með fyrirvara.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
09/06/202173.800.000 kr.87.000.000 kr.174.8 m2497.711 kr.Já
09/06/202173.800.000 kr.87.000.000 kr.174.8 m2497.711 kr.Já
27/11/20075.550.000 kr.28.900.000 kr.174.8 m2165.331 kr.Já
27/11/20075.550.000 kr.28.900.000 kr.174.8 m2165.331 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2007
30.7 m2
Fasteignanúmer
2306767
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
11.450.000 kr.

Myndir (49)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Móabarð 18
Heitur pottur
Opið hús:07. okt. kl 17:15-17:45
Skoða eignina Móabarð 18
Móabarð 18
220 Hafnarfjörður
122.6 m2
Hæð
312
652 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Ásvellir 7 íb. 102
Bílastæði
Opið hús:05. okt. kl 16:30-17:00
Ásvellir 7 íb. 102
220 Hafnarfjörður
76.5 m2
Fjölbýlishús
21
914 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Axlarás 10A
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Axlarás 10A
Axlarás 10A
221 Hafnarfjörður
160.6 m2
Raðhús
43
800 þ.kr./m2
128.400.000 kr.
Skoða eignina Bogabraut 951
Skoða eignina Bogabraut 951
Bogabraut 951
262 Reykjanesbær
184.4 m2
Fjölbýlishús
524
374 þ.kr./m2
68.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin