Fasteignaleitin
Opið hús:09. júlí kl 17:30-18:00
Skráð 1. maí 2025

Suðurbraut 28

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
91.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
67.900.000 kr.
Fermetraverð
742.888 kr./m2
Fasteignamat
60.750.000 kr.
Brunabótamat
53.950.000 kr.
Mynd af Guðný Þorsteinsdóttir
Guðný Þorsteinsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2079681
Landnúmer
122501
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Yfirfarið að hluta
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Yfirfarið að hluta
Þak
Yfirfarið að hluta
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suður / Vestur
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
NÁNARI UPPLÝSINGAR FÆRÐU HJÁ GUÐNÝJU ÞORSTEINS Í SÍMA 7715211 EÐA GUDNYTH@REMAX.IS

RE/MAX og GUÐNÝ ÞORSTEINS löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu: 
Björt og vel skipulögð 3-4ra herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýli við Suðurbraut 28 í Hafnarfirði. Eignin er skráð 91,4fm að stærð, þar af er 4fm sérgeymsla í sameign. Íbúðin hefur verið endurnýjuð að hluta á síðustu árum, m.a. með nýjum gólfefnum og eldhúsinnréttingu.

Íbúðin er björt í opnu alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu, ásamt notalegu sjónvarpsholi sem auðvelt er að breyta í 3ja svefnherbergið. Útgangur er út á svalir sem snúa í suðaustur, sem tryggir góða birtu stóran hluta dagsins. 2 góð svefnherbergi, snyrtilegt baðherbergi ásamt sér þvottahúss innan íbúðar. 

Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í forstofu með fatahengi sem nýlega var útbúið. Harðparket er á gólfi.
Eldhús: Eldhúsið er með dökkri innréttingu og góðu skápaplássi, en hún var endurnýjuð árið 2020. Eldhúsbekkir eru úr límtré sem voru endurnýjaðar 2025. Ofn er í vinnuhæð, barborð skilur eldhúsið frá borðstofu/stofu. Blöndunartæki voru endurnýjuð árið 2020.
Stofa og borðstofa: Er björt og opin með harðparketi á gólfi. Útgangur er á svalir sem snúa í suðaustur.
Herbergi I: Rúmgott svefnherbergi með harðparketi á gólfi og sexföldum fataskápum sem ná upp í loft.
Herbergi II: Gott svefnherbergi með harðparketi á gólfi ásamt tvöföldum fataskáp.
Setustofa/Herbergi III: Er rými sem í dag er nýtt sem setustofa en er opin inn í alrými. Upprunalega 3ja herbergi íbúðar sem auðvelt er að breyta aftur.
Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt með ljósum flísum á veggjum og gráum flísum á gólfi. Upphengt salerni, baðkari með sturtu í og hvítri innréttingu undir vaski ásamt veggskáp fyrir ofan. Handklæðaofn er á vegg.
Þvottahús: Sér þvottahús innan íbúðar með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flísum á gólfi ásamt innréttingu.
Svalir: Svalirnar snúa í suðaustur og bjóða upp á gott útsýni yfir nágrennið. Útgangur er á svalir frá stofu.
Geymsla: Sér 4fm geymsla fylgir íbúðinni og er hún staðsett í sameign á jarðhæð.
Sameign: Í sameign er einnig sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Staðsetning: Miðsvæðis í Hafnarfirði með stuttri leið í alla helstu þjónustu, verslanir og samgöngur. Um er að ræða fjölbýli í rólegu umhverfi.

Að sögn seljanda ásamt upplýsingum frá húsfélagi er viðhald eftirfarandi:
2025 - Límtrésplötur settar á eldhúsbekki
2025 - Fatahengi útbúið í forstofu
2023 - Húsið múrviðgert og málað
2020 - Skipt út gólfefnum (harðparket, flísar á blautrýmum).
2020 - Skipt út eldhússkápum
2020 - Blöndunartæki í eldhúsi

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Re/Max því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.600 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, 69.900 kr. m.vsk.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
23/10/202556.450.000 kr.64.000.000 kr.91.4 m2700.218 kr.
20/06/201830.200.000 kr.35.400.000 kr.91.4 m2387.308 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Erluás 2
Skoða eignina Erluás 2
Erluás 2
221 Hafnarfjörður
91.5 m2
Fjölbýlishús
312
781 þ.kr./m2
71.500.000 kr.
Skoða eignina Apalskarð 2 íb. 307
Bílastæði
Apalskarð 2 íb. 307
221 Hafnarfjörður
95.7 m2
Fjölbýlishús
312
758 þ.kr./m2
72.500.000 kr.
Skoða eignina Gullsmári 5
Opið hús:09. júlí kl 16:00-16:30
Skoða eignina Gullsmári 5
Gullsmári 5
201 Kópavogur
82.3 m2
Fjölbýlishús
312
869 þ.kr./m2
71.500.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 7E íb206
Eskiás 7E íb206
210 Garðabær
93.6 m2
Fjölbýlishús
312
960 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin