Ragnar Guðmundsson S: 844-6516 löggiltur fasteignasali hjá TORG fasteignasölu kynnir: Falleg og rúmgóð 3ja herbergja íbúð á eftirsóttum stað að Bólstaðarhlíð 40, 105 Reykjavík. Eignin er skráð skv. FMR 69,2 fm og skiptist í anddyri, rúmgóða stofu með borðstofuplássi, svalir, tvö svefnherbergi, eldhús og baðherbergi. Sérgeymsla er á jarðhæð ásamt sameiginlegu þvottaherbergi og hjóla- og vagnageymslu. Göngufæri er í leikskóla, grunnskóla, verslanir og veitingahús.
Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 844-6516 eða ragnar@fstorg.is*Seljandi klárar að borga framkvæmdir sem eru nýlega loknar.
Nánari lýsing:Anddyri/hol: Fataskápur og flísar á gólfi. Rýmið tengir saman öll rými eignarinnar. Hurð hefur verið endurnýjuð í
brunavarnarhurð og dyrasíminn endurnýjaður.Eldhús: Flísalagt eldhús með hvítri retro innréttingu. Gott skápapláss, eldavél, stæði fyrir ísskáp og gluggi með opnanlegu fagi.
Stofa/borðstofa: Stofan og borðstofan eru rúmgóðar í björtu samliggjandi rými með harðparketi á gólfum. Úr stofu er útgengt á suðursvalir með útsýni í stóran sameiginlegan garð og opið tún.
Hjónaherbergi: Rúmgott með innbyggðum háum fataskáp og harðparketi á gólfi.
Svefbnherbergi: Að undanskildu hjónaherbegi er rúmgott svefnherbergi með innbyggðum háum fataskáp og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi: Innrétting með innréttingu búinni handlaug og neðri skápum, salerni, baðkari með sturtuaðstöðu og flísum á gólfi.
Geymsla: Á jarðhæð sameignar er sérgeymsla
með glugga. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Einnig er stórt sameiginlegt þvottahús með sér tengjum fyrir þvottavél og þurrkara og þurrkherbergi á jarðhæð sameignar.
Lóð: Mjög stór sameiginlegur garður og lóð umliggur húsið.
Virkilega skemmtileg íbúð á vinsælum stað þar sem göngufæri er í flesta þjónustu, eitt vinsælasta útivistarsvæði Reykjavíkur og góðar almenningssamgöngur.
Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar Guðmundsson fasteignasali S: 844-6516 / netfang: ragnar@fstorg.isFáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér ragnar@fstorg.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.