Miklaborg kynnir:
Sérlega glæsilega útsýnisþakíbúð með aukinni lofthæð, veglegum þaksvölum og fallegri sjávarsýn. Íbúðir á efstu hæðum eru með þaksvölum með stórbrotnu útsýni til fjalla og yfir hafið. Frá íbúðunum blasir við útsýni til Bláfjalla og Bessastaða, auk víðáttumikils landslags höfuðborgarsvæðisins. Íbúðirnar eru með aukinni lofthæð og skilast tilbúin til innréttinga. Verð fyrir fullkláraða íbúð má finna í Nánari lýsingu að neðan. Allar íbúðirnar eru búnar sérstöku loftræstikerfi. Rýmin eru björt og notaleg þökk sé gólfhita og stórum gluggum. Þakíbúðirnar eru aðeins sýndar í einkasýningu.
Allar nánari upplýsingar veita Friðjón í s. 692 2704 og Friðrik í s. 616 1313
Nánari lýsing
Glæsileg og rúmgóð útsýnisþakíbúð með stóraukinni lofthæð og veglegum þaksvölum sem bjóða upp á einstakan griðastað utandyra. Eignin skiptist í forstofu með miklu skápaplássi, rúmgóða stofu með möguleika á eldstæði, borðstofu, víngeymslu og eldhús með eyju í opnu rými.
Rýmið er tilvalið fyrir móttöku gesta. Úr alrými er útgengt á suðurþaksvalir með sjávarsýn. Tvær rúmgóðar hjónasvítur með innangengu fataherbergi auk baðherbergis. Úr stærri hjónasvítunni er hægt að ganga beint út á þaksvalir.
Íbúðin er einnig búin sérþvottahúsi og búri.
Bílastæði nr B19 & B20. Frístundaskúr nr 0001. Þaksvalir eru 62,5 m2 og svalir 14,8 m2 að stærð.
Kaupendur geta haft áhrif á efnisval og skipulag íbúðar komi þeir snemma að kaupum.
Gert er ráð fyrir afhendingu vorið 2027. Sjá nánar sölusíðu verkefnis HÉR !
Auglýst verð miðast við að íbúðin afhendist tilbúin til innréttinga og hefur kaupandi þá kost að haga hönnun og efnisvali eftir sínum stíl. Í boði er að fá íbúðir afhentar fullkláraðar án megingólfefna og eftir atvikum frágang arins og útisvæðis. Verð á íbúð 503 miðað við slík skil er kr. 325.000.000,- Sé þess óskað geta kaupendur valið um hönnunarþema, Yl eða Stein. Innréttingar verða þá frá Parka og Voke III og vönduð tæki frá Siemens, þmt. helluborð með innbyggðri viftu og þráðlausri stýringu, sambyggðir baksturs- og örbylgjuofnar.
Frystiskápar og vínkælar í völdum íbúðum. Íbúðirnar verða búnar snjöllu hússtjórnunarkerfi frá Free@home sem gerir íbúum kleift aðstýra hitastigi, lýsingu, gardínum og fleiru á einfaldan hátt. Tæknimaður sér um uppsetningu kerfisins í hverri íbúð og leiðbeinir um notkun þess. Nánari upplýsingar um endanleg skil fást hjá söluaðila.
Á Vesturbakka rísa 118 vandaðar eignir þar sem rík áhersla er lögð á fágaðan arkitektúr, tímalausa hönnun og nútímaþægindi, fyrir þau sem vilja aukin lífsgæði og fallega sjávarsýn.
Íbúðirnar eru fjölbreyttar og einkennast af vönduðu efnisvali og vel útfærðuskipulagi. Alrými þeirra eru björt og rúmgóð og skapa aðlaðandi umgjörð umdaglegt líf og samveru með fjölskyldu og vinum. Í hjarta byggðarinnar er skjólgóður inngarður og til suðurs tekur við hafnarsvæði Kársness sem er í umbreytingu, en þar munu mannlíf og náttúra mætast.
Fjölbreytt afþreyfing er í boði í frístundarými sem staðsett verður á 1. hæð við Vesturbakka 21b og er opið sameiginlegt fyrir íbúa í húsinu. Þar verður vönduð líkamsræktaraðstaða, útisvæði með heitum- og köldum potti ásamt saunu. Þá verður golfhermir og aðstaða fyrir pílukast.
Næg bílastæði verða á lóðinni en 103 sérmerkt stæði eru í bílakjallara auk þess sem 58 bílastæði verða á lóð hússins.
Vesturbakki stendur við Kársneshöfn, þar sem spennandi framtíðarsýn Kópavogsbæjar er að taka á sig mynd. Skipulag svæðisins gerir meðal annars ráð fyrir veitingastað og aðstöðu til sjósunds sem munu glæða höfnina lífi. Fyrir framan Vesturbakka er gert ráð fyrir bryggju- og hafnaraðstöðu, sem veitir siglingaáhugafólki einstakt tækifæri til að hafa bát sinn við bryggju. Staðsetningin á Kársnesinu sameinar nálægð við náttúruna og fjölbreytta þjónustu. Með tilkomu Fossvogsbrúarinnar styrkist tengingin við Reykjavík ennfrekar og greið leið opnast að miðborginni, háskólasvæðunum og útivistarparadísinni í Nauthólsvík
Sjá upplýsingabækling HÉR !
Nánari upplýsingar veita :
Friðjón Örn Magnússon lgfs. í s. 692 2704 og fridjon@miklaborg.is
Friðrik Þ. Stefánsson lögmaður og lgfs. í s. 616 1313 og fridrik@miklaborg.is
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
200 | 205,9 | 300 | ||
201 | 93,5 | 77,6 | ||
200 | 83,1 | 73,9 | ||
230 | 190,9 | 104,5 | ||
108 | 239,6 | 187,9 | ||
109 | 196,8 | 123,5 |