Týsnes 8 eignarhluti 102 - Mjög gott iðnaðarbil með vönduðu millilofti í nýlegu húsi. Eignin er um 200 m² að heildarstærð, þar af er rúmgott milliloft sem hefur verið útbúið yfir hluta og er ekki inni í skráðum fermetrum. Birt stærð, grunnflötur eignarinnar er 121,2 m² skv. Fasteignaskrá HMS. Lóðin er leigulóð í eigu Akureyrarbæjar, skráð 6.994,8 m² stærð og að stærstum hluta malbikuð.
Eignin skiptist í rúmgóðan sal, kaffistofu og snyrtingu auk lagerrýmis og skrifstofu- og starfsmannaaðstöðu á millilofti.
Salurinn er með lökkuðu gólfi, góðri lofthæð og stórri rafdrifinni innkeyrsluhurð sem opnast í flútti við þakhalla. Inn af sal er geymslurými og snyrting. Snyrting er með ljósum neðri skápum og wc. Kaffistofa er við inngang eignar. Þar er harðparket á gólfi og góð innrétting með innfelldum ísskáp. Timburstigi er upp á milliloftið sem skiptist í opið rými auk geymslurýmis. Opna rýmið er í dag notað sem skrifstofu- og starfsmannaaðstaða, þar er gluggi yfir salinn og golfhermir sem getur fylgt með við sölu eignar.
Annað - Burðarvirki hússins eru steinsteyptar undirstöður/gólf og timburvirki úr límtré. Útveggir eru gerðir úr 100 mm steinullarsamlokueiningum sem festast í límtrésburðarvirki. - Þak er klætt með 160 mm steinullarsamlokueiningum. - Skv. eignaskiptayfirlýsingu hafa allar eignir sérnotafleti út frá húsi að útbrún malbiks og afmarkast um hugsaða miðlínu milli eigna. - Sér hitaveitumælir er fyrir hvern eignarhluta í húsinu. Inntak er staðsett í tæknirými. - Snjóbræðsla í hluta af plani, tengd við affall af húsi. - Gólfhiti steyptur í plötu. - Einn rafmagnsmælir fyrir hverja séreign, staðsettir í tæknirými. - Á eigninni hvílir vsk-kvöð. Upphæð vsk-kvaðar er ekki inni í kaupverði.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Dagsetning
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
Nothæfur samningur
01/06/2023
29.950.000 kr.
43.632.000 kr.
121.2 m2
360.000 kr.
Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.