Jason Kristinn s. 7751515 á Betri Stofunni og Safír byggingar ehf kynna með stolti
Orkureitinn. Glæsilegar nýjar íbúðir í öðrum áfanga (D-húsi) á Orkureitnum við
Suðurlandsbraut 38-44 og Grensásveg 2-6. Glæsilegt lyftuhús, sannkallaður sælureitur við Laugardalinn. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar með vönduðum Nobilia Innréttingum frá GKS, flísalögðum baðherbergjum en án megingólfefna.
Rut Kára stýrir innanhússhönnun og er sérstök áhersla lögð á gott flæði dagsbirtu.
Svansvottaðar íbúðir.
Heimasíða OrkureitsinsOrkureitur - Grensásveg,
íbúð 204 er 3-4ja herbergja 129 fm
með sérmerktu stæði B064.
Flæði íbúðar:Komið inní
anddyri með góðum fataskápum.
Baðherbergi með sturtu.
Hjónasvíta með góðum fataskápum og sér baðherbergi.
Herbergi II Er með fataskáp
Herbergi III er sjónvarpsrými á teikningu, en lítið mál að breyta í svefnherbergi.
Úr stofu er gengið út á svalir.
Eldhúsið Glæsileg innrétting frá GKS með eyju. Safír Klassík.
Alrými tengir saman eldhús, borðstofu og stofu og er með gólfsíðum gluggum.
Sérþvottahús íbúðar er rúmgott með góðri innréttingu.
Gólfsíðir gluggar og gólfhit ásamt loftskiptakerfi gefa aukin gæði.
Sérgeymsla er 15,9 fm.
Innréttingaþema er klassík. Vönduð eldhústæki frá Siemens, Elica og Bora.
Nánar um Orkureitinn: Bjartar og vel hannaðar íbúðir. Á Orkureitnum verða byggðar 436 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Við hönnun íbúða er lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni. Hver íbúð hefur eigin búnað til loftskipta sem hámarkar loftgæði.
Stórt bílastæðahús er tengt byggingum neðanjarðar en auk þess eru verslunar- og þjónusturými á jarðhæð með fjölbreyttri þjónustu við íbúa eins og veitingahús og kaffihús. Fyrsta áfanga (A-húsi) er lokið en áformað er að allri uppbyggingu á svæðinu verði lokið í lok árs 2027.
Nánari upplýsingar veita sérfræðingar Betri Stofunnar:
Jason Kristinn Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1515 - tölvupóstur: jason@betristofan.is
Guðbjörg Guðmundsdóttir , í síma 899-5533, tölvupóstur gudbjorg@betristofan.is.
Telma Rut Frímannsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 772-3555 - tölvupóstur: telma@betristofan.is