Skráð 14. feb. 2023
Deila eign
Deila

Norðurgata 18

Jörð/LóðSuðurland/Selfoss-801
Verð
13.500.000 kr.
Fasteignamat
8.640.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Fasteignanúmer
2340898
Húsgerð
Jörð/Lóð
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Lóð
100
Matsstig
0 - Úthlutað
Kvöð / kvaðir
Húsið var með stöðuleyfi sem ekki fæst endurnýjað og kaupandi þarf því að skila inn teikningu af húsinu sem er á lóðinni.
HÚS fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Norðurgata 18. Búgarðalóð - 11.085 fm. eignarlóð í Tjarnabyggð í Sveitarfélaginu Árborg, milli Selfoss og Eyrarbakka.

Á lóðinni er hús sem stendur á steyptum súlum og möl í bílastæði. Húsið er 18 fm. Frágengið að utan og fokhelt að innan. Rafmagn er komið inn í húsið og inntaksgjald greitt. Heitt og kalt vatn í vegi á lóðarmörkum. Lóðin er í um 45 mínútna akstri frá Reykjavík og í um 4 km fjarlægð frá Selfossi.  Tjarnarbyggð er skemmtilegur kostur fyrir fólk sem vill búa í sveitinni og nýta sér alla þjónustu eins og þéttbýlið hefur upp á að bjóða. Sveitarfélagið Árborg og viðkomandi veitur munu sjá um allan rekstur svæðisins eins og snjómokstur, sorphirðu, skólaakstur, tæmingu rotþróa, heitt og kalt vatn. 

Nánar um Tjarnabyggð:
Heimilt er að byggja allt að 1500 fm húsnæði á jörðinni og þar af íbúðarhúsnæði allt að 1000 fm. Samtals byggingarmagn útihúsa og íbúðarhúss skal þó ekki vera stærra en 1500 fm samtals.
Svæðið er skipt upp í klasa og eru 5-6 lóðir í hverjum klasa. Á milli klasa eru reið- og göngustígar.
Á svæðinu er heimiluð ýmis atvinnustarfsemi tengd landbúnaði í samræmi við aðalskipulag Árborgar. 

Norðurgata 18 er girt með lóð nr 20 sem er í eigu sama aðila. Hægt er að kaupa báðar lóðir saman. 

Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali s 8648090 eða snorri@husfasteign.is

 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, fyrstu kaupendur 0,4%, lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Mynd af Snorri Sigurfinnsson
Snorri Sigurfinnsson
Löggiltur fasteignasali

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Norðurgata 21
Skoða eignina Norðurgata 21
Norðurgata 21
801 Selfoss
Jörð/Lóð
12.900.000 kr.
Skoða eignina Birkibraut 2
Skoða eignina Birkibraut 2
Birkibraut 2
806 Selfoss
14.4 m2
Sumarhús
1
896 þ.kr./m2
12.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2023 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache