Fasteignaleitin
Skráð 1. júní 2026

Hrísmóar 10

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
97.5 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
82.900.000 kr.
Fermetraverð
850.256 kr./m2
Fasteignamat
72.600.000 kr.
Brunabótamat
46.430.000 kr.
Mynd af Katrín Eliza Bernhöft
Katrín Eliza Bernhöft
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílskúr
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2070790
Landnúmer
118837
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Ekki vitað
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Katrín Eliza Bernhöft löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX kynnir í einkasölu: HRÍSMÓAR 10, 210 GARÐABÆ
Falleg og vel skipulögð tveggja herbergja íbúð í fjölbýlishúsi í hjarta Garðabæjar. Íbúðin er með björtu eldhúsi sem er opið inn í stofu, einu svefnherbergi, skrifstofurými, baðherbergi og þvottaherbergi innan eignar. Góður sameiginlegur garður. Stutt í iðandi mannlíf á Garðatorgi og alla helstu þjónustu. Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 97,5 fm. Íbúðin er skráð 71,6 fm, bílskúr 20,3 fm og geymsla 5,6 fm. Auk þess eru rúmgóðar svalir, 12,4 fm sem snúa í suður. Eignin hefur fastanúmerið 207-0790, íbúð merkt 010302 og selst ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðaréttindum.

Nánari lýsing:
Gengið er upp snyrtilegan teppalagðan stigagang.
Af stigagangi er gengið er inn í anddyri með góðu skápaplássi.
Stofan er björt með samliggjandi stofu og eldhúsi. Gluggar snúa út í garðinn og frá stofu er útgengt á svalir.
Eldhúsið er með nýlegri sérsmíðaðri innréttingu og með góðu skápa- og vinnuplássi.
Hjónaherbergið er með mjög góðu skápaplássi, þaðan er einnig útgengt á svalir. 
Baðherbergið er flísalagt á veggjum og gólfi. Baðkar með sturtu, upphengt salerni og vaskur ofan á fallegri hvítri innréttingu. Spegill fyrir ofan vask.
Skrifstofurými er inn af stofu sem mögulega væri hægt að breyta í annað herbergi.
Þvottaherbergi er innan eignar. Mjög vel skipulagt með innréttingu og skápaplássi.
Íbúðin er öll parketlögð nema flísalagt er á baðherbergi og í þvottahúsi.
Bílskúr fylgir eigninni og er hann með inngönguhurð á bílskúrshurðinni.
Næg bílastæði. Skv. Eignakiptayfirlýsingu eru íbúðirnar í húsinu Hrísmóar 8 - 10 samtals 12 og bílastæðin eru samtals 18.
Sameignin er öll mjög snyrtileg. Í sameign er hjóla- og vagnageymsla, þar er einnig geymsla sem er í séreign.
Íbúðin er virkilega björt og falleg og þess virði að skoða.

Stutt í alla helstu þjónustu. Verslunarkjarninn á Garðatorgi er í 2 mín göngufæri með iðandi mannlífi og alla helstu þjónustu, matvöruverslun, veitingarhús, ísbúð, heilsugæslu, o.fl. Leik- grunn- og framhaldsskólar í göngufæri og sundlaug Garðabæjar er í ca. 10 mín göngufjarlægð. Virkilega góð staðsetning, stutt á stofnbrautir og góðar almenningssamgöngur.

SMELLTU HÉR og skoðaðu þessa eign í 3-D
  • 3D - OPIÐ HÚS ÞEGAR ÞÉR HENTAR
  • Í 3D getur þú skoðað eignina hvar sem þú ert í tölvu, síma eða snjalltæki, ferðast auðveldlega á milli herbergja með því að nota músina, örvatakkana á lyklaborðinu eða fingur og kynnt þér rýmið betur.
  • Ekki þarf sérstakt forrit til að skoða eignina í 3D.  Ef þú lendir í vandræðum, ekki hika við að hafa samband við okkur.
Fyrir söluyfirlit og allar nánari upplýsingar, hafðu samband:
Katrín Eliza Bernhöft löggiltur fasteignasali, s.699 6617, katrin@remax.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. REMAX bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af löggiltum fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Starfsmanni fasteignasölunnar hefur ekki verið bent á aðra galla á eigninni en fram koma í söluyfirliti þessu. 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
·      Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
·      Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
·      Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk     
·      Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunnar.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
24/11/202040.350.000 kr.43.000.000 kr.97.5 m2441.025 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1984
20.3 m2
Fasteignanúmer
2070790
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
17
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.330.000 kr.

Myndir (27)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Báruklöpp 12
Bílskúr
Skoða eignina Báruklöpp 12
Báruklöpp 12
250 Garður
140.6 m2
Parhús
312
701 þ.kr./m2
98.500.000 kr.
Skoða eignina Fífumói 1D - 0301
Fífumói 1D - 0301
260 Reykjanesbær
79.8 m2
Fjölbýlishús
312
600 þ.kr./m2
47.900.000 kr.
Skoða eignina Brimklöpp 5
Bílskúr
Skoða eignina Brimklöpp 5
Brimklöpp 5
250 Garður
191.7 m2
Einbýlishús
412
456 þ.kr./m2
87.500.000 kr.
Skoða eignina Brimklöpp 7
Bílskúr
Skoða eignina Brimklöpp 7
Brimklöpp 7
250 Garður
191.7 m2
Einbýlishús
43
456 þ.kr./m2
87.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin