Glæsileg 3ja herbergja íbúð með stæði í bílageymslu í eftirsóttu bryggjuhverfi á Kársnesi
Tinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna 91,8 m² glæsilega 3ja herbergja íbúð á 2. hæð við Hafnarbraut 11 í Kópavogi. Íbúðin er í eftirsóttu og vaxandi bryggjuhverfi á Kársnesi, þar sem stutt er í sjóinn og þjónustu. Stæði í bílageymslu fylgir eigninni.
- Stæði í bílageymslu
- Tvö svefnherbergi
- Eftirsótt staðsetning í bryggjuhverfi á Kársnesi
Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða tinna@haborg.is
Íbúðin er skráð 91,8 fm samkvæmt HMS, þar af er íbúðin sjálf 79,8 fm og sérgeymsla í kjallara 12,0 fm. Svalir eru 6,6 fm.
Húsið er 39 íbúða fjölbýli með lyftu. Samkvæmt húsfélagsyfirlýsingu fela gjöldin í sér almennan rekstur, rafmagn í sameign, þrif á sameign og rekstur lyftu.
Nánari lýsing:
Komið er inn í forstofu með parketi á gólfi og góðum skáp.
Bjart alrými, stofa og eldhús, með parketi á gólfi og útgengt á svalir. Eldhúsinnrétting er frá HTH með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.
Tvö svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt með salerni, sturtu og fallegri eikarinnréttingu með vaski, lýsingu og spegli.
Þvottaherbergi með vaski og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla, 12,0 m², fylgir íbúðinni í kjallara.
Stæði í bílageymslu (merkt B12) fylgir eigninni.
Sameign og umhverfi: Eignin er í 39 íbúða fjöleignarhúsi með lyftu, og er umsýsla húsfélagsins í höndum Eignaumsjónar. Aflokaður sameiginlegur garður er á baklóð með leiktækjum og grillaðstöðu fyrir íbúa.
Kársnesið er eitt eftirsóttasta búsetusvæði höfuðborgarsvæðisins og hefur blómstrað á síðustu árum með kröftugri uppbyggingu við sjávarsíðuna. Hér fer saman rólegt og barnvænt umhverfi, nálægð við hafið og góðar samgöngur í allar áttir. Innan seilingar eru útivistar- og leiksvæði, gönguleiðir með ströndinni, skólar og leikskólar, verslun, veitingastaðir og stutt yfir í Reykjavík. Umhverfið býður upp á fjölbreytta afþreyingu og fallega náttúru í göngufæri frá heimilinu.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða tinna@haborg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.