Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Melasíða 4 - Vel skipulögð og snyrtileg 4ra herbergja íbúð á 3ju hæð (efstu) í fjölbýli í síðuhverfi - stærð 94,1 m²
Frekari upplýsingar veitir Sigurður H. Þrastarson, 888-6661, siggithrastar@kaupa.isEignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Á jarðhæð er sér geymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Forstofa er með opnu fatahengi og flísum á gólfi.
Eldhús er með ljósri málaðri innréttingu og mjög góðum borðkrók. Úr eldhúsi er hurð út á steyptar vestur svalir. Flísar á gólfi.
Stofa er með spónaparketi á gólfi og gluggum til tveggja átta.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með spónaparketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað, þar er baðkar með sturtutækjum og glervæng. Ljós innrétting undir vask. Flísar eru á gólfi og fibo plötur á veggjunum.
Þvottahús er með flísum á gólfi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Tengi er fyrir vask.
Geymsla í sameign er með hillum og rafmagnstengli.
Annað- Snyrtileg sameign.
- Eignin er með tímabundinn leigusamning til 1.9.2026.
- Þak yfirfarið 2014/15.
- Myndavéladyrasími.
- Eignin er í einkasölu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.