***TINDAFLÖT 8 - AKRANESI***
Domusnova og Ólafur Sævarsson lögg.fasteignasali kynna: Mjög svo fallega 3ja. herb. 99.6fm íbúð á 2.hæð í fallegu fjölbýli. Lyftuhús. Góðar suður svalir með svalalokun.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu með útgang út á suður svalir. Hjónaherbergi og rúmgott barnaherbergi. Baðherbergi sem og sér þvottahús inn af íbúðar. Geymsla sem og hjóla/vagna geymsla á jarðhæð.Lýsing eignar:Forstofa: Flísar á gólfi með góðum fataskáp. Mjög rúmgóð forstofa.
Eldhús: Vinyl parket á gólfi
með fallegri hvitri innréttingu. Góð tæki og eyja. Þvottahús við hlið eldhúss. Eldhús endurnýjað 2020.
Stofa/borðstofa: Góð stofa sem og borðstofa með parketi á gólfi. Útgangur út á stórar suður svalir með svalalokun. Flísar á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskáp. Parket á gólfi
Svefnherbergi: Barnaherbergi með góðum fataskáp. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Fallegt baðherbergi með fallegri hvtri innréttingu og skáp. Góð sturta með sturtugleri og upphengd wc. Endurnýjað 2020.
Þvottahús: Gott þvottahús fyrir bæði þvottavél og þurrkara inn í íbúð
Bílageymsla : Stæði í bílageymslu.
Hjóla/vagna geymsla á 1.hæð. Einnig sér geymsla á geymslugangi.
4 rafhleðslu stöðvar á bílaplani fyrir utan.
Eignin er vel staðsett og er st
utt í skóla, leikskóla, verslunarþjónustu, golfvöll, skógrækt og íþróttamiðstöðNánari upplýsingar veitir:Ólafur Sævarsson löggiltur fasteignasali / s.820 0303 / olafur@domusnova.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.