ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu 5. herbergja parhús á einni hæð að Brimdal 4 í Innri-Njarðvík. Einstaklega glæsileg eign byggð 2021. Stapaskóli í göngufæri (grunn og leikskóli) Eignin er skráð hjá Þjóðskrá Íslands alls 185 m2. Íbúð er skráð 143,5 m2 og bílskúr 41,5 m2. Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, gestasalerni, þvottahús, geymslu og bílskúr.
Nánari upplýsingar og skoðunarbókanir:
Dísa Edwards Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5510, tölvupóstur disa@allt.is
Jóna Björg Löggiltur Fasteignasali, í síma 560-5506, tölvupóstu jona@allt.is*** Sérsmíðaðar innréttingar
*** Harðparket frá Birgisson
*** Innfelld lýsing með dimmerum
*** Gólfhitastýring í öllum rýmum
*** Í bílskúr er epoxy á gólfi
*** Sólpallur sem snýr til suðurs með heitum pottiNánari lýsingForstofa er með ljósum gólfflísum og dökkum viðarfataskáp sem nær upp í loft. Inn af forstofu er gengið inn í bílskúr, gestasalerni og inn í alrými íbúðar.
Gestasalerni er með ljósar flísar á gólfi, upphengt salerni og skápur undir handlaug.
Sjónvarpshol: Parket á gólfi.
Eldhús er opið inn í stofu og skilur eyja á milli. Parket á gólfi, svört innrétting með góðu skápaplássi. Spanhelluborð er í eyju. Innbyggð uppþvottavél, bakaraofn í vinnuhæð og vínrekki ofan við ísskáp. Öll tæki i eldhúsi eru frá Whirlpool.
Stofa/borðstofa: Parket á gólfi. Gólfsíðir gluggar. Útgengt á góðan sólpall með skjólveggjum og þar er heitur pottur.
Þvottahús er inn af eldhúsi. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara og eru vélar í vinnuhæð.
Svefnherbergi: Eru fjögur talsins, öll mjög rúmgóð og er parket á gólfi þeirra allra sem og sérsmíðaðir fataskápar í hverju þeirra.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með ljósum flísum. Walk in sturta með innfelldum blöndunartækjum, baðkar, upphengt salerni, svartur handklæðaofn og svört innrétting með handlaug.
Bílskúr er með epoxy á gólfi. Niðurfall fyrir miðju gólfi. Vaskur. Lagnagrind og rafmagnstafla í bílskúr. Rafmagn er 3-fasa. Sjálfvirkur hurðaopnari.
Útgengi er út á viðar verönd.
Rúmgott og hellulagt upphitað bílaplan. Lóðin er tyrfð ásamt stórum sólpalli sem snýr til suðurs. Lóðin er afmörkuð með steyptum lágum veggjum allan hringinn.Eignin er afar vel staðsett, stutt í Stapaskóla, þar er jafnframt að finna almennings sundlaug og bókasafn sem nýtist íbúum hverfisins vel.
Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.